Verkefnastjóri hjá Samtökum fyrirtækja í landbúnaði segir marga þætti koma til skoðunar þegar horft sé til hækkunar á matvælaverði en verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta sem þekkist í Evrópu. Hann segir lækkun á virðisaukaskatti geta hjálpað til við að lækka verð á matvöru.
Sigurður Helgi Birgisson, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði Samtaka iðnaðarins og verkefnastjóri hjá Samtökum fyrirtækja í landbúnaði, segir innlenda framleiðslu viðkvæma fyrir ólíkum þáttum.
„Launaþróunin hefur til dæmis veruleg áhrif á framleiðslukostnað og eins og staðan er í dag hafa í rauninni allir undirliggjandi þættir við framleiðslu hækkað.
Það eru laun, húsnæði, opinber gjöld, aðföng, fjármagnskostnaður, verðbólga, raungengi og orkukostnaður. Allt skiptir þetta gífurlegu máli fyrir innlenda framleiðslu sem er viðkvæm,“ segir Sigurður Helgi.
Að sögn Sigurðar er landbúnaðarframleiðsla tímafrek. Í hana þurfi einnig mikið af aðföngum. Þá geri miklar sveiflur og stöðugar hækkanir það að verkum að erfitt sé að tempra verð til lengri tíma.
„Við í landbúnaðinum höfum bent stjórnvöldum á að OECD hefur ráðlagt Íslandi að lækka virðisaukaskatt á matvæli,“ segir Sigurður.
„Við höfum bent á að lækkun á virðisaukaskatti á nauðsynleg matvæli gæti hjálpað við að lækka verð í því árferði sem er núna enda erum við með einn hæsta virðisauka á matvæli innan OECD-ríkjanna.“