Flak fraktflugvélar K2 Airways sem hrapaði suðvestur af Karachi í Pakistan í nótt er fundið. Flugvélin missti samband við flugumferðarstjórn eftir að flugmenn tilkynntu um bilun í flugleiðsögutækjum.
Fimm voru um borð í vélinni og þeirra er enn saknað. Í áhöfninni voru tveir flugmenn, tveir flugvirkjar og einn starfsmaður.
Eftir að flugvélin missti samband við flugumferðarstjórn hófst umfangsmikil leit af hálfu pakistanska sjóhersins og sjóbjörgunarstofnunarinnar. Tólf klukkustundum síðar fannst flakið í Arabíuhafi, 53 sjómílum sunnan við hafnarbæinn Omara í Pakistan.
Samkvæmt yfirvöldum í Pakistan er unnið að því að finna áhöfn vélarinnar, sem var á leið frá Karachi, borg í suðurhluta Pakistan, til Sharjah í Sameinuðu arabísku furstadæmunum þegar hún hrapaði.