Rabbíninn Shmuley Boteach er nú staddur á Íslandi og vinnur nú að gerð heimildarmyndar um landið og vill hann sérstaklega komast til botns í því hvers vegna margir eru á móti Ísrael. Fram kemur á vefsíðu Boteach að hann hafi skrifað 30 bækur og bæði Washington Post og Newsweek hafi kallað hann „frægasta rabbína Bandaríkjanna“. Hefur hann meðal annars komið fram í þáttum Opruh Winfrey og Dr. Phil.
Frægur rabbíni vinnur að heimildarmynd um Ísland: „Við ætlum að reyna að komast til botns í þessu“