Flóttinn frá krónunni heldur áfram: 257 fyrirtæki gera upp í erlendum gjaldmiðlum
Stór hluti af íslenska hagkerfinu gerir upp í evrum og dollurum, á meðan íslensk heimili þurfa að láta krónuna nægja.
Alls eru 257 félög á Íslandi með heimild til þess að færa bókhald og semja ársreikninga í erlendri mynt samkvæmt svörum frá ríkisskattstjóra og hefur þeim fjölgað lítillega á síðustu tveimur árum, eða um níu fyrirtæki. Á undanförnum tíu árum hefur fyrirtækjum fjölgað um 147 sem gera upp í erlendri mynt til þess að koma sér undan gengisáhættu og óstöðugleika íslensku krónunnar. Flest fyrirtækin nýta sér evru en næstflest bandaríska dollarann.
225 prósent aukning
Þegar litið er til lengra tímabils, eða til 2012, má sjá að fyrirtæki sem nýta sér annan gjaldmiðil en krónuna hafa aukist um 225 prósent. 79 fyrirtæki gerðu upp í öðrum gjaldmiðli en krónunni árið 2012. Á meðal fyrirtækja sem nýta sér evru í uppgjörum eru stærstu sjávarútvegsfélög landsins, svo sem Samherji og Brim.
Allt í allt nota að minnsta kosti 14 útgerðir aðra mynt en krónuna, og öll þau fyrirtæki nota evruna utan eitt fyrirtæki. …