Fjaðra­fok vegna á­sakana um kynlífsþrælkun á Wall Street - Vísir

Fjaðra­fok vegna á­sakana um kynlífsþrælkun á Wall Street - Vísir

Fjaðra­fok vegna á­sakana um kynlífsþrælkun á Wall Street - Vísir

Rana heldur því meðal annars fram að konan hafi hótað því að hann yrði rekinn ef hann hefði ekki mök við hana og níðst á honum með öðrum hætti.

Hún á meðal annars að hafa sagt við hann: „Ég þori að veðja að litla asíska eiginkona þín, með fiskshausinn, sé ekki með svona bombur“ og sagt honum að hafa við sig mök, annars myndi hún rústa ferli hans, samkvæmt frétt Wall Street Journal.

„Ekki gleyma því, að ég fokking á þig!“

Hann heldur því einnig fram að hún hafi tvisvar sinnum boðið honum munnmök á skrifstofunni og ítrekað kallað hann „brúna strákinn“ sinn. Rana er af nepölskum uppruna.

Þá segist hann einu sinni hafa farið að gráta eftir að hún klæddi hann úr buxunum og hafði mök við hann. Þá á Hajdini að hafa sagt honum að hætta þessu væli.

„Heldur þú að einhver muni trúa þér? Þú ert djöfulsins drullusokkur sem heldur að hann sé rosa flottur en getur ekki einu sinni fengið standpínu fyrir mig. Hvað í helvítinu er þetta eiginlega?“

Vildi 22 milljónir en var boðin ein

New York Times sagði frá því í síðustu viku að forsvarsmenn JPMorgan hefðu boðið Rana milljón dala með því skilyrði að hann myndi ekki höfða mál gegn konunni. Því neitaði hann og höfðaði mál. Fyrst fór hann fram á 22 milljónir dala.

Nú hafa þessir forsvarsmenn lýst yfir stuðningi við konuna, sem heitir Lorna Hajdini, og segja lögmenn fyrirtækisins að ekkert væri til í ásökunum hans í garð hennar. Þá segja þeir að Rana hafi neitað að taka þátt í innri rannsókn fyrirtækisins á ásökunum hans.

Við framkvæmd rannsóknar, sem byggði á viðtölum við starfsmenn, tölvupóstum og öðrum samskiptum, fundust engar vísbendingar um að Hajdini hefði brotið á honum.

Talsmaður JPMorgan sagði í yfirlýsingu að forsvarsmenn fyrirtækisins hefðu viljað sleppa við kostnaðarsöm og tímafrek réttarhöld og þá vildu þeir einnig standa við bak Hajdini og reyna að komast hjá því að hún yrði fyrir skaða. Þess vegna hefði Rana verið boðin greiðsla.

Lögmenn hennar segja það sama um ásakanirnar og ítreka að þau hafi aldrei átt í kynferðislegu sambandi.

NYT hafði þó eftir lögmanni Rana í síðustu viku að á rúmlega þrjátíu ára ferli hans hefðu vinnuveitendur aldrei boðið svo háa uppfærð ef þeir teldu ekkert til í ásökununum.

Mikið um rangfærslur

Eins og áður segir hefur þetta mál verið mikið milli tannanna á fólki á internetinu. Í grein Wall Street Journal er umræðan kölluð „samfélagsmiðla-sirkus“ og hefur hún leitt til þess að mörgum hefur þótt erfitt að fá á hreint hvað sé rétt og hvað sé rangt.

Nokkuð hefur verið um rangfærslur og grín um málið. Rana höfðaði fyrst málið þann 27. apríl en það hvarf skömmu síðar af síðu dómstólsins í New York. Margir netverjar töldu það til marks um að eitthvað dularfullt væri að eiga sér stað en lögmaður Rana þurfti að höfða málið aftur vegna mistaka sem voru gerð við afgreiðslu málsins.

Það hefur meðal annars verið rætt í gífurlega vinsælum hlaðvörpum vestanhafs, eins og í þætti Joes Rogan. Það hefur einnig verið til umræðu í sjónvarpsþáttum eins og Daily Show.

Í grein WSJ er bent á sögusagnir um að Rana hafi verið að halda framhjá konu sinni með Hajdini en hann var í rauninni ekki giftur. Þá hefur því einnig verið haldið fram að hún hafi verið yfirmaður hans, sem er ekki rétt. Þau voru um tíma í sama teyminu innan JPMorgan en hún mun aldrei hafa verið yfirmaður hans á nokkurn hátt.

Í lögsókninni heldur Rana því fram að Hajdini hafi fyrst gengið á hann í maí 2024 og þá hafi hann leitað til yfirmanns síns og beðið um að þurfa ekki að vinna frekar með henni.

Hann heldur því einnig fram að hún hafi byrlað honum ólyfjan og brotið á honum. Þá er vitnað í tvö ónafngreind vitni sem segja að Hajdini hafi snert Rana með óviðeigandi hætti. Annað vitnið, sem segist hafa búið á sófanum hjá Rana á þeim tíma, segir að hún hafi beðið sig um að taka þátt í trekant með henni og Rana.

Heimildarmaður WSJ í JPMorgan segir að undir lok árs 2024 hafi Rana hætt að mæta í vinnuna og sagt yfirmönnum sínum að faðir hans hefði dáið. Samstarfsfélagar hans sendu honum blóm en síðar kom í ljós að faðir hans var ekki látinn en lögmaður Rana segir að hann hafi verið að tala um mann sem var honum eins og faðir, án þess þó að segja hvaða maður það var.

Blaðamaður NYPost hringdi í föður Rana, sem sagðist ekkert vita um lögsókn sonar síns.

Í maí 2025 lagði Rana fram kvörtun gegn Hajdini og öðrum innan fyrirtækisins. Þá sagði hann að brotið hefði verið á sér og sakaði samstarfsfélaga sína um rasisma og krafðist 22 milljóna dala. Hann var sendur í launað leyfi og á endanum var honum boðin áðurnefnd milljón. Því tilboði hafnaði hann.

Rana hætti hjá JPMorgan í lok síðasta árs og hóf vinnu hjá Bregal Sagemount, öðru fjármálafyrirtæki. Hann hætti störfum þar í apríl.

#fjaðrafok #kynlífsþrælkun #vegna #wall #ásakana

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262881878d/fjadrafok-vegna-asakana-um-kynlifsthraelkun-a-wall-street

📰 Aðrar fréttir

Orðið á götunni: Marklaus gagnrýni Lilju – er vandinn ekki bara sá að Framsókn var hafnað í Alþingiskosningum?
„Ætlum að sækja að olíu­fé­laginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
„Ætlum að sækja að olíu­fé­laginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ - Vísir
Þetta kemur fram í harðorðri færslu á samfélagsmiðlinum Instagram. Líkt og fram hefur komið er skip Paul Watson, Bandero, nú í íslenskri efnahagslögsö...
Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar
📅 30.06.2026 👁️ 0
Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar
Svavar Pálsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar. Hann tekur við starfinu 1. október næstkomandi. Hann tekur við af Pétri Arasyni, sem hafð...
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar - Vísir
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Þar er rætt við Helgu Þórisdóttur forstjóra Persónuverndar sem staðfestir að málið sé komið til Persónuverndar...
Bandero boðar atlögu að olíufélagi Hvals hf.
📅 30.06.2026 👁️ 0
Bandero boðar atlögu að olíufélagi Hvals hf.
Skip Paul Watson-samtakanna á Íslandsmiðum, Bandero, ætlar að leggja til atlögu við olíufélagið sem þjónustar Hval hf. Þetta tilkynntu samtökin á samf...
Segir gervigreindina ráða eina: „Samfélagsmiðlar munu hætta að vera til“
📅 30.06.2026 👁️ 0
Segir gervigreindina ráða eina: „Samfélagsmiðlar munu hætta að vera til“
„Við erum í raun ekki skynsemisverur sem byggja á gagnrýninni hugsun. Við viljum vera það, en það gengur illa,“ segir Janis Sarts, forstöðumaður öndve...
Two arrested over death of young man at commercial centre in Puerto Rico, Gran Canaria
📅 30.06.2026 👁️ 0
Two arrested over death of young man at commercial centre in Puerto Rico, Gran Canaria
Two people have been arrested in connection with the death of a young man at a commercial centre in Puerto Rico, in the municipality of Mogán, in the ...
Úkraínskur auð­kýfingur særðist í sprengju­til­ræði í Móna­kó - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Úkraínskur auð­kýfingur særðist í sprengju­til­ræði í Móna­kó - Vísir
Sprengjan sprakk í inngangi byggingarinnar nærri landamærunum að Frakklandi um klukkan níu í gærkvöldi að staðartíma. Tveir fullorðnir og barn særðust...
World Cup 2026: USA security chief Markwayne Mullin 'danced a happy dance' after Iran exit
📅 30.06.2026 👁️ 0
World Cup 2026: USA security chief Markwayne Mullin 'danced a happy dance' after Iran exit
The United States' head of homeland security says he "danced a happy dance" when Iran's elimination from the World Cup was confirmed.
Lýsa yfir þungum á­hyggjum af notkun gervi­greindar við tón­listar­sköpun - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Lýsa yfir þungum á­hyggjum af notkun gervi­greindar við tón­listar­sköpun - Vísir
Þar er bent á að plötuútgefendur hafi farið að leyfa notkun á tónlistarsöfnum sínum í þjálfun gervigreindar og framleiðslu á tilbúnni tónlist, án þess...
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara á borði Persónuverndar
📅 30.06.2026 👁️ 0
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara á borði Persónuverndar
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara er til skoðunar hjá Persónuvernd. Nöfn fimm manna sem sættu sakamálarannsókn og málsnúmer birtust í kynningarmyndb...
Kaldi eða strekkingur á suð­vestan- og vestan­verðu landinu - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Kaldi eða strekkingur á suð­vestan- og vestan­verðu landinu - Vísir
Lægð við suðausturströnd Grænlands sem mjakast til norðausturs beinir hægt vaxandi sunnanátt til landsins, að sögn Veðurstofu Íslands. Hún á að valda ...
Lægðaskil með samfelldri rigningu
📅 30.06.2026 👁️ 0
Lægðaskil með samfelldri rigningu
Lægð við suðausturströnd Grænlands beinir til okkar vaxandi sunnanátt og vætu með köflum. Þegar skil lægðarinnar ganga yfir má búast við samfelldri ri...
Canary Islands Government issues wildfire alert due to extreme heat and weather conditions
📅 30.06.2026 👁️ 0
Canary Islands Government issues wildfire alert due to extreme heat and weather conditions
The Canary Islands Government has activated a forest wildfire alert as the archipelago braces for its first significant heatwave of the year, with soa...
Ýtukarl á átt­ræðis­aldri er enn að bæta vegina - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Ýtukarl á átt­ræðis­aldri er enn að bæta vegina - Vísir
Í hópi tíu karla við vegagerð í Vatnsdal, sem við sögðum frá í kvöldfréttum Sýnar, er aldursforsetinn á stærðarinnar jarðýtu.Hann er úr Landeyjum og s...
Fann ástina og tók sénsinn í New York - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fann ástina og tók sénsinn í New York - Vísir
Klara Sól stofnaði fyrirtækið The Liminal Society og ætlar sér stóra hluti í lífinu. Hún er gift fyrirsætunni og meistaranemanum Chris Petersen og þau...
Comparing Coastlines: Why chasing the sun past Gibraltar offers a completely different holiday vibe
📅 30.06.2026 👁️ 1
Comparing Coastlines: Why chasing the sun past Gibraltar offers a completely different holiday vibe
If you’re choosing between a holiday on Spain’s Atlantic coast and one further round in the Mediterranean, it helps to know they’re not really interch...
Reiðin magnast í Venesúela - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Reiðin magnast í Venesúela - Vísir
Breska ríkisútvarpið ræðir við fjölda Venesúelabúa sem bíða ýmist fregna eða taka þátt í leit af ástvinum sínum sem liggja enn undir rústum bygginga o...
Með kylfur og mikið magn vímu­efna - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Með kylfur og mikið magn vímu­efna - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglu. Þar kemur fram að lögreglu hafi einnig borist tilkynning um þjófnað úr matvöruverslun á stöð 1 s...
Wimbledon 2026: Serena Williams on Maya Joint match and return to tennis
📅 30.06.2026 👁️ 1
Wimbledon 2026: Serena Williams on Maya Joint match and return to tennis
For Serena Williams, everything and nothing has changed on her return to Wimbledon.
Sex látnir eftir skotárás í Þýskalandi – Maður af tyrkneskum uppruna handtekinn
📅 30.06.2026 👁️ 1
Sex látnir eftir skotárás í Þýskalandi – Maður af tyrkneskum uppruna handtekinn
Sex manns létust í skotárás í bænum Stade í norðurhluta Þýskalands á mánudag. Fimm létust á vettvangi en sjötti einstaklingurinn lést síðar á sjúkrahú...
Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson - Vísir
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag þar sem rætt er við Kristján. Líkt og kunnugt er er skip Paul Watson, Bandero, nú í íslenskri efnahagslögsögu o...
TUESDAY WEATHER: Canary Islands face warnings for 40°C heat, calima and some strong winds
📅 30.06.2026 👁️ 1
TUESDAY WEATHER: Canary Islands face warnings for 40°C heat, calima and some strong winds
The Canary Islands are set for another day of intense summer weather today, Tuesday, with temperatures forecast to climb to 40°C in some areas, accomp...
Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður á Íslandi
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður á Íslandi
Um miðjan júní var sagt frá því í fréttatilkynningu að Bláa lónið og ferðaþjónustufyrirtækið Arctic Adventures ætluðu sér að sameinast. Ef af þessum s...
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum
📅 30.06.2026 👁️ 1
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum Nátt­úru­fræði­stofn­un tel­ur drög um­hverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­...
Rúmlega 400 drónum grandað yfir Rússlandi í nótt
📅 30.06.2026 👁️ 1
Rúmlega 400 drónum grandað yfir Rússlandi í nótt
Rússar skutu niður 419 úkraínska dróna í nótt. Frá þessu greinir rússneska varnarmálaráðuneytið.Aukinn kraftur hefur færst í árásir Úkraínumanna með l...
Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans
Hæstiréttur Bandaríkjanna neitaði með fimm atkvæðum gegn fjórum að leyfa Donald Trump að reka Lisu Cook úr bankaráði bandaríska seðlabankans. Hæstirét...
Pupil put in isolation booth for more than half a school year, BBC learns
📅 30.06.2026 👁️ 2
Pupil put in isolation booth for more than half a school year, BBC learns
The pupil's experience in a Yorkshire school highlights concerns about zero-tolerance behaviour policies.
Angry citizens accuse Venezuelan government of negligence
📅 30.06.2026 👁️ 1
Angry citizens accuse Venezuelan government of negligence
People in areas devastated by twin earthquakes say they need more support from the government.
Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum
📅 30.06.2026 👁️ 1
Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum
Kínverski milljarðamæringurinn Guo Wengui var í gær dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum. Í júlí 2024 var hann sakfelldur fyrir fjársvik, fjárkúgu...
World Cup 2026: Julian Nagelsmann faces pressure as Germany bow out
📅 30.06.2026 👁️ 1
World Cup 2026: Julian Nagelsmann faces pressure as Germany bow out
Germany make a shock last-32 exit against Paraguay, losing a World Cup penalty shootout for the first time to pile pressure on boss Julian Nagelsmann.
Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó
📅 30.06.2026 👁️ 1
Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó
Þrír særðust, þar á meðal táningur, eftir að sprengja sprakk í íbúðarhúsnæði í Mónakó í kvöld.Heimildarmaður AFP segir einn hinna særðu vera Vadym Yer...
Særún sigldi aukaferð til að fylla á vatnsbirgðir í Flatey
📅 30.06.2026 👁️ 2
Særún sigldi aukaferð til að fylla á vatnsbirgðir í Flatey
Ferjan Særún sigldi aukaferð til Flateyjar á Breiðafirði í kvöld til að flytja vatn til eyjarinnar. Breiðafjarðarferjan Baldur hefur sinnt vatnsflutni...
Hæsti­réttur Banda­ríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Hæsti­réttur Banda­ríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps - Vísir
Árið 2023 var Trump gert að greiða Caroll fimm milljónir bandaríkjadala, sem samsvarar um 650 milljónum íslenskra króna, í skaðabætur. Áfrýjunardómstó...
Stefna konu í Ástralíu vegna vangoldins námsláns upp á 21 milljón
📅 29.06.2026 👁️ 1
Stefna konu í Ástralíu vegna vangoldins námsláns upp á 21 milljón
Menntasjóður námsmanna hefur stefnt konu á fertugsaldri vegna gjaldfalinnar skuldar upp á meira en 21 milljón króna. Konan tók lánið árið 2009, lauk n...
Chris Mason: Burnham revels on public stage but has little time to hammer ideas into shape
📅 29.06.2026 👁️ 1
Chris Mason: Burnham revels on public stage but has little time to hammer ideas into shape
As a man who has held prime ministerial ambitions for years, Andy Burnham makes his dash for the door, political editor Chris Mason writes.
Segir ekki til­efni til að endur­skoða lyfjaakstursmál síðustu ára - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Segir ekki til­efni til að endur­skoða lyfjaakstursmál síðustu ára - Vísir
Vilhjálmur Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður skoraði á ríkissaksóknara að endurskoða öll lögreglumál sem varða lyfjaakstur frá því að ný umferðarlög tó...
Vonar að samningurinn verði lóð á vogarskálarnar í friði í Palestínu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Vonar að samningurinn verði lóð á vogarskálarnar í friði í Palestínu
Mohammed Al-Amour efnahagsráðherra sótti ráðherrafund EFTA-ríkjanna hér á landi til að skrifa undir uppfærslu á landbúnaðarhluta fríverslunarsamnings ...
Homes harder to sell as high mortgage rates frustrate buyers
📅 29.06.2026 👁️ 1
Homes harder to sell as high mortgage rates frustrate buyers
Three in five homes listed for sale since January remain on the market, says property portal Zoopla.
Vig­dís kíkti í kaffi til Krist­rúnar - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Vig­dís kíkti í kaffi til Krist­rúnar - Vísir
Kristrún deilir færslu um heimsóknina ásamt mynd af þeim tveimur meðal annars á Instagram-síðu sinni. Hún segir þær hafa farið um víðan völl yfir kaff...
Another UK heatwave could be on the way
📅 29.06.2026 👁️ 1
Another UK heatwave could be on the way
As parts of Europe continue to swelter in record temperatures, higher temperatures could develop again across the UK later this week, as Simon King ex...
'We can't continue like this': Inquiry demands NHS maternity overhaul
📅 29.06.2026 👁️ 1
'We can't continue like this': Inquiry demands NHS maternity overhaul
An independent inquiry into England's maternity services has found "unacceptable racism and discrimination" is affecting patient safety.
Dánarorsök barnastjörnunnar afhjúpuð og aðstandendur vara við fjáröflun kærastans
📅 29.06.2026 👁️ 1
Dánarorsök barnastjörnunnar afhjúpuð og aðstandendur vara við fjáröflun kærastans
Leikkonan Daveigh Chase lést fyrir viku síðan, en hún var hvað þekktust fyrir að vera rödd Lilo í teiknimyndinni Lilo & Stitch og fyrir hryllingsmyndi...
Árásarmaðurinn í Stade á staðnum vegna forsjárdeilu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Árásarmaðurinn í Stade á staðnum vegna forsjárdeilu
Árásarmaður sem skaut sex manns til bana í þjónustumiðstöð í þýska bænum Stade í dag var þangað kominn til að ræða um forsjárdeilu.Maðurinn átti í dei...
101 árs og mætir fjórum sinnum í viku í ræktina
📅 29.06.2026 👁️ 1
101 árs og mætir fjórum sinnum í viku í ræktina
Íbúar á Sléttunni í Fossvogi, einu Hrafnistuheimilanna, eru duglegir að hreyfa sig og gera alls konar æfingar, hvort sem það er í sal eða tækjasal. Þa...
Monaco explosion injures three people, French media report
📅 29.06.2026 👁️ 1
Monaco explosion injures three people, French media report
The blast at a residential building was "very likely an attack", Monaco's head of government tells AFP.
Parcel bomb injures Ukrainian oligarch and family in Monaco - reports
📅 29.06.2026 👁️ 0
Parcel bomb injures Ukrainian oligarch and family in Monaco - reports
The blast was caused by an explosive device which appeared to contain bolts and pellets, the head of Monaco's government said.
Manhunt under way after bomb injures Ukrainian oligarch and family in Monaco

Vara­maður á Ísa­firði verður sveitar­stjóri Súðavíkur - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Vara­maður á Ísa­firði verður sveitar­stjóri Súðavíkur - Vísir
Greint er frá ráðningunni á heimasíðu Súðavíkurhrepps og segir þar að undanfarin ár hafi Elísabet starfað sem fjármála- og skrifstofustjóri hjá Fiskvi...
Kenna stafsetningarvillu um samskiptaleysi við Landhelgisgæsluna
📅 29.06.2026 👁️ 1
Kenna stafsetningarvillu um samskiptaleysi við Landhelgisgæsluna
Paul Watson samtökin segjast hafa strax orðið við beiðni Landhelgisgæslunnar um að senda tilkynningar um staðsetningu Bandero á klukkutíma fresti með ...