Facebook og Instagram brjóta reglur um aðgang barna segir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins

Facebook og Instagram brjóta reglur um aðgang barna segir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins

Fyrstu niðurstöður rannsóknar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á samfélagsmiðlunum Instagram og Facebook benda til þess að að Meta, móðurfyrirtæki þessara miðla, geri ekki nóg til að hindra aðgang barna undir 13 ára aldri að miðlunum.

„Þrátt fyrir skilyrði sem Meta hefur sjálft sett um að lágmarksaldur notenda sé 13 ár, virðast úrræði fyrirtækisins ekki vera skilvirk,“ segir í fréttatilkynningu frá framkvæmdastjórninni sem birt var í morgun. „Úrræðin koma hvorki í veg fyrir að börn undir þessum aldri fái aðgang að miðlunum né fjarlægja aðgang þeirra.“ Auðvelt sé fyrir unga notendur að villa á sér heimildir og á sama tíma sé flókið að tilkynna notkun þeirra til fyrirtækjanna.

Í tilkynningunni segir ennfremur að eigið mat fyrirtækisins á notkun barna stangist á við rannsóknargögn frá aðildarríkjum ESB sem bendi til þess að 10-12% barna undir 13 ára aldri séu notendur á Facebook og Instagram. Meta virðist einnig hafa hunsað gögn sem benda til þess að ungir notendur séu útsettir fyrir skaða af notkun þessara samfélagsmiðla.

Bregðist Meta ekki við gæti fyrirtækið átt yfir höfði sér himinháar sektir. Samkvæmt DSA reglugerðinni er hægt að krefjast þess að tæknifyrirtæki greiði allt að sex prósent af veltu á heimsvísu. Sú velta hjá Meta var um 200 milljarðar bandaríkjadala í fyrra.

Ekki fyrsta skiptið sem ESB tekur á stórum tæknifyrirtækjum

Samkvæmt lauslegu yfirliti er rannsókn framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á Meta sú sautjánda sem gerð er á grundvelli DSA-reglugerðarinnar um netfyrirtæki (Digital Services Act), sem tók gildi að fullu 2024.

Í fyrra var X sektað um tæpa átján milljarða króna fyrir að brjóta reglugerðina, TikTok hefur verið rannsakað vegna hönnunar sem hvetur til þrjálátrar notkunar og slælegra vinnubragða við að hindra notkun barna og í febrúar á þessu ári hófst rannsókn á netverslunarrisanum Shein, meðal annars vegna sölu á vörum sem tengjast kynferðislegu ofbeldi gegn börnum.

Í mars var svo tilkynnt um bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar á klámsíðum á borð við Pornhub sem taldar eru koma sér hjá því að hindra að börn geti skoðað efni á þessum síðum.

Flókin innleiðing í EES-ríkjunum

Samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið er DSA-reglugerðin ein af þeim sem Ísland, Noregur og Lichtenstein eiga að innleiða í lagaumhverfi sitt. Reglugerðin tók gildi í nóvember 2022 og síðan þá hefur verið unnið að innleiðingu hennar í EES-ríkjunum.

Sú vinna hefur gengið mjög hægt, meðal annars vegna ákvæða í reglugerðinni um að framkvæmdastjórn ESB framfylgi þessum reglum gagnvart stóru tæknifyrirtækjunum. Þetta kom til að mynda fram í samtali við Karianne O. Tung, ráðherra stafrænna mála í Noregi fyrr á þessu ári.

„Noregur getur ekki afsalað sér fullveldi beint til framkvæmdastjórnarinnar. Þess vegna verðum við að finna stofnanalegar lausnir innan ramma EES. Það tekur tíma en það er nauðsynlegur hluti af ferlinu,“ sagði Tung í viðtali í mars en tók við sama tækifæri fram að hún vildi að þessar reglur yrðu innleiddar eins fljótt og auðið er. Án þeirra hefðu norsk stjórnvöld ekki sömu möguleika á eftirliti og úrræðum og aðildarríki Evrópusambandsins.

Ásakanir um ritskoðun og reglugerðarfargan

Miðað við hvernig ráðamenn í Washington hafa áður brugðist við fréttum af þessu tagi má búast við hörðum orðum úr þeirri átt eftir þetta nýjasta útspil Evrópusambandsins gagnvart stóru tæknifyrirtækjunum (sem nánast öll eru bandarísk). Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa í þessu samhengi ítrekað talað um tilburði til ritskoðunar og reglugerðarfargan. Bandaríska utanríkisráðuneytið hefur sett ferðabann á nokkra fyrrverandi embættismenn framkvæmdastjórnarinnar sem unnu að framkvæmd DSA-reglugerðarinnar og deilur um þetta hafa haft áhrif á samningaviðræður Evrópusambandsins og Bandaríkjanna um viðskipti á óskyldum vörutegundum og þjónustu.

Vaxandi fylgi við áform um strangari reglur

Afstaða framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins til stóru tæknifyrirtækjanna og samfélagsmiðla á grundvelli DSA á sér þó hljómgrunn víða í Evrópu. Í Frakklandi er verið að undirbúa löggjöf sem bannar börnum yngri en 15 ára aðgang að samfélagsmiðlum svipað og gert var í Ástralíu í fyrra og stjórnvöld í Danmörku stefna að því að sambærileg löggjöf taki gildi á þessu ári.

#evrópusambandsins #framkvæmdastjórn #instagram #facebook #brjóta


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-04-29-facebook-og-instagram-brjota-reglur-um-adgang-barna-segir-framkvaemdastjorn-evropusambandsins-473871

📰 Aðrar fréttir

University of Sussex wins landmark free speech case against universities regulator
📅 29.04.2026 12:02:38 👁️ 0

University of Sussex wins landmark free speech case against universities regulator

#universities#university#regulator#landmark#against
Segir húsnæðispakka ekki taka á bráðavanda
📅 29.04.2026 12:00:20 👁️ 0

Segir húsnæðispakka ekki taka á bráðavanda

#húsnæðispakka#bráðavanda#segir#ekki#taka
Six held after Crewe religious group modern slavery raid
📅 29.04.2026 11:57:08 👁️ 0

Six held after Crewe religious group modern slavery raid

#religious#slavery#modern#after#crewe
Nágrannar reyndu að hrekja vændiskaupendur burt
📅 29.04.2026 11:53:46 👁️ 0

Nágrannar reyndu að hrekja vændiskaupendur burt

#vændiskaupendur#nágrannar#reyndu#hrekja#burt
King Charles III and Donald Trump exchange jokes during speeches
📅 29.04.2026 11:41:37 👁️ 0

King Charles III and Donald Trump exchange jokes during speeches

#exchange#speeches#charles#donald#during
Verð­bólgan hjaðnar og vand­ræði í Landeyjahöfn - Vísir
📅 29.04.2026 11:34:10 👁️ 0

Verð­bólgan hjaðnar og vand­ræði í Landeyjahöfn - Vísir

#landeyjahöfn#verðbólgan#vandræði#hjaðnar#vísir
William and Catherine share new photo to mark 15th wedding anniversary
📅 29.04.2026 11:34:04 👁️ 0

William and Catherine share new photo to mark 15th wedding anniversary

#anniversary#catherine#william#wedding#share
Neitunarvald Kristrúnar ónýtir þjóðaratkvæði í þágu Viðreisnar
📅 29.04.2026 11:30:42 👁️ 0

Neitunarvald Kristrúnar ónýtir þjóðaratkvæði í þágu Viðreisnar

#þjóðaratkvæði#neitunarvald#kristrúnar#viðreisnar#ónýtir
Okkar borg ætlar ekki að flæma múslima úr landi
📅 29.04.2026 11:27:06 👁️ 0

Okkar borg ætlar ekki að flæma múslima úr landi

#múslima#okkar#ætlar#flæma#landi
Police raid Crewe religious group in modern slavery inquiry
📅 29.04.2026 11:06:41 👁️ 1

Police raid Crewe religious group in modern slavery inquiry

#religious#slavery#inquiry#police#modern
Irish fuel protests:  Irish government announces fuel supports
📅 29.04.2026 11:05:15 👁️ 0

Irish fuel protests: Irish government announces fuel supports

#government#announces#protests#supports#irish
Oil price jumps to $115 after reports of 'extended' Iran blockade
📅 29.04.2026 11:04:25 👁️ 1

Oil price jumps to $115 after reports of 'extended' Iran blockade

#extended#blockade#reports#price#jumps
8 Family-Friendly Activities That Turn Your Holiday into an Adventure
📅 29.04.2026 10:58:00 👁️ 0

8 Family-Friendly Activities That Turn Your Holiday into an Adventure

#activities#adventure#friendly#holiday#family
459 milljóna afgangur hjá Rangárþingi ytra
📅 29.04.2026 10:49:55 👁️ 1

459 milljóna afgangur hjá Rangárþingi ytra

#rangárþingi#milljóna#afgangur#ytra
Ís­lenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu - Vísir
📅 29.04.2026 10:40:28 👁️ 0

Ís­lenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu - Vísir

#íslenskir#jöklar#töpuðu#evrópu#mestu
Óvenju­heitt frá norður­skauti til Miðjarðar­hafs í fyrra - Vísir
📅 29.04.2026 10:40:28 👁️ 1

Óvenju­heitt frá norður­skauti til Miðjarðar­hafs í fyrra - Vísir

#miðjarðarhafs#norðurskauti#óvenjuheitt#fyrra#vísir
Nýir fréttastjórar Sýnar
📅 29.04.2026 10:38:40 👁️ 1

Nýir fréttastjórar Sýnar

#fréttastjórar#sýnar#nýir
Fótur hlaupakonu í Londonmaraþoninu „sprakk“ – Skórinn alblóðugur - DV
📅 29.04.2026 10:30:27 👁️ 1

Fótur hlaupakonu í Londonmaraþoninu „sprakk“ – Skórinn alblóðugur - DV

#londonmaraþoninu#hlaupakonu#alblóðugur#skórinn#sprakk
Guðni svarar Ólafi fullum hálsi og sakar hann um ósannindi – „Einfaldlega staðlausir stafir“ - DV
📅 29.04.2026 10:30:23 👁️ 1

Guðni svarar Ólafi fullum hálsi og sakar hann um ósannindi – „Einfaldlega staðlausir stafir“ - DV

#einfaldlega#staðlausir#ósannindi#svarar#fullum
Halda til Sví­þjóðar í af­mælis­veislu - Vísir
📅 29.04.2026 10:24:27 👁️ 1

Halda til Sví­þjóðar í af­mælis­veislu - Vísir

#afmælisveislu#svíþjóðar#halda#vísir
Atli og Sunna nýir frétta­stjórar og Árni vara­frétta­stjóri - Vísir
📅 29.04.2026 10:20:31 👁️ 1

Atli og Sunna nýir frétta­stjórar og Árni vara­frétta­stjóri - Vísir

#varafréttastjóri#fréttastjórar#sunna#vísir#atli
Hafa tekið 21 af lífi og handtekið 4.000 síðan stríðið byrjaði
📅 29.04.2026 10:18:49 👁️ 0

Hafa tekið 21 af lífi og handtekið 4.000 síðan stríðið byrjaði

#handtekið#stríðið#byrjaði#tekið#síðan
Musk accuses Altman of stealing a charity as OpenAI battle begins
📅 29.04.2026 10:12:46 👁️ 1

Musk accuses Altman of stealing a charity as OpenAI battle begins

#stealing#accuses#charity#altman#openai
Forsetahjónin mæta í afmælishátíðarhöld Svíakonungs
📅 29.04.2026 10:11:06 👁️ 1

Forsetahjónin mæta í afmælishátíðarhöld Svíakonungs

#afmælishátíðarhöld#forsetahjónin#svíakonungs#mæta
Kosningapallborð frétta­stofu: Glæ­ný skoðana­könnun kynnt fyrir Hafnar­fjörð - Vísir
📅 29.04.2026 10:05:18 👁️ 1

Kosningapallborð frétta­stofu: Glæ­ný skoðana­könnun kynnt fyrir Hafnar­fjörð - Vísir

#kosningapallborð#skoðanakönnun#fréttastofu#hafnarfjörð#glæný
Af hverju minnkar athygli, umhyggja og natni eftir því sem líður á sambandið?
📅 29.04.2026 10:00:07 👁️ 1

Af hverju minnkar athygli, umhyggja og natni eftir því sem líður á sambandið?

#sambandið#umhyggja#minnkar#athygli#hverju
Frakkar hvattir til að yfirgefa Malí
📅 29.04.2026 09:50:49 👁️ 1

Frakkar hvattir til að yfirgefa Malí

#yfirgefa#frakkar#hvattir#malí
Þing­menn klöppuðu ó­spart fyrir konunginum - Vísir
📅 29.04.2026 09:50:17 👁️ 1

Þing­menn klöppuðu ó­spart fyrir konunginum - Vísir

#konunginum#þingmenn#klöppuðu#óspart#fyrir
Laura Dern replaces Helena Bonham Carter in The White Lotus
📅 29.04.2026 09:39:10 👁️ 1

Laura Dern replaces Helena Bonham Carter in The White Lotus

#replaces#helena#bonham#carter#laura
Kenya welcomes four critically endangered mountain bongos from Prague zoo
📅 29.04.2026 09:37:23 👁️ 0

Kenya welcomes four critically endangered mountain bongos from Prague zoo

#critically#endangered#welcomes#mountain#bongos
Ætla að dæla upp meira af heitu vatni í Reykjavík - DV
📅 29.04.2026 09:30:43 👁️ 1

Ætla að dæla upp meira af heitu vatni í Reykjavík - DV

#reykjavík#meira#heitu#vatni#ætla
Police raids in Crewe in modern slavery and forced marriage inquiry
📅 29.04.2026 09:30:40 👁️ 1

Police raids in Crewe in modern slavery and forced marriage inquiry

#marriage#slavery#inquiry#police#modern
Hefur áhyggjur af kosningunum eftir að engir framboðslistar bárust - DV
📅 29.04.2026 09:30:12 👁️ 1

Hefur áhyggjur af kosningunum eftir að engir framboðslistar bárust - DV

#framboðslistar#kosningunum#áhyggjur#bárust#hefur
Ert þú í framboði? Vertu með í kosningaprófi RÚV
📅 29.04.2026 09:26:04 👁️ 1

Ert þú í framboði? Vertu með í kosningaprófi RÚV

#kosningaprófi#framboði#vertu
„Það er því miður arðbært að hagnýta fólk“
📅 29.04.2026 09:15:35 👁️ 1

„Það er því miður arðbært að hagnýta fólk“

#arðbært#hagnýta#miður#fólk
Verðbólgan eilítið niður á við - DV
📅 29.04.2026 09:13:08 👁️ 1

Verðbólgan eilítið niður á við - DV

#verðbólgan#eilítið#niður
Verðbólgan lækkar lítillega
📅 29.04.2026 09:08:56 👁️ 1

Verðbólgan lækkar lítillega

#verðbólgan#lítillega#lækkar
Verðbólga hjaðnar milli mánaða
📅 29.04.2026 09:03:00 👁️ 1

Verðbólga hjaðnar milli mánaða

#verðbólga#hjaðnar#mánaða#milli
Segja borgina koma sér undan því að bæta tjón starfsfólks
📅 29.04.2026 08:31:13 👁️ 1

Segja borgina koma sér undan því að bæta tjón starfsfólks

#starfsfólks#borgina#segja#undan#koma
Af­hroð Rússa í Malí: Víga­menn segjast stjórna stórum hluta landsins - Vísir
📅 29.04.2026 08:08:37 👁️ 1

Af­hroð Rússa í Malí: Víga­menn segjast stjórna stórum hluta landsins - Vísir

#vígamenn#landsins#segjast#stjórna#afhroð
Afghanistan women: Fifa rule changes allows return to international competition
📅 29.04.2026 08:08:14 👁️ 1

Afghanistan women: Fifa rule changes allows return to international competition

#international#afghanistan#competition#changes#allows
Þyngja refsingu fyrrverandi forseta
📅 29.04.2026 08:03:11 👁️ 1

Þyngja refsingu fyrrverandi forseta

#fyrrverandi#refsingu#forseta#þyngja
Reyndur ferðabloggari um Ísland – „Þetta er ódýrasta leiðin til að ferðast um Ísland án þess beinlínis að pína sig" - DV
📅 29.04.2026 08:00:36 👁️ 1

Reyndur ferðabloggari um Ísland – „Þetta er ódýrasta leiðin til að ferðast um Ísland án þess beinlínis að pína sig" - DV

#ferðabloggari#beinlínis#ódýrasta#reyndur#ferðast
Advert for £49 face serum banned over misleading 'five years younger' claim
📅 29.04.2026 07:48:16 👁️ 1

Advert for £49 face serum banned over misleading 'five years younger' claim

#misleading#younger#advert#banned#serum
Sænska lög­reglan reynir að upp­ræta „glæpa­menn til leigu“ - Vísir
📅 29.04.2026 07:35:03 👁️ 1

Sænska lög­reglan reynir að upp­ræta „glæpa­menn til leigu“ - Vísir

#lögreglan#glæpamenn#uppræta#sænska#reynir
Skipulagsmál í brennidepli í oddvitaumræðum í Garðabæ
📅 29.04.2026 07:26:46 👁️ 1

Skipulagsmál í brennidepli í oddvitaumræðum í Garðabæ

#oddvitaumræðum#skipulagsmál#brennidepli#garðabæ
Á­sýnd Trump mun prýða við­hafnar­út­gáfu vegabréfsins - Vísir
📅 29.04.2026 07:26:04 👁️ 1

Á­sýnd Trump mun prýða við­hafnar­út­gáfu vegabréfsins - Vísir

#viðhafnarútgáfu#vegabréfsins#ásýnd#trump#prýða
Woman rescued after falling into inspection pit at ITV centre in south Tenerife
📅 29.04.2026 07:19:00 👁️ 2

Woman rescued after falling into inspection pit at ITV centre in south Tenerife

#inspection#tenerife#rescued#falling#centre
Skúrir og slyddu­él en létt­skýjað á Norður- og Austur­landi - Vísir
📅 29.04.2026 07:17:50 👁️ 1

Skúrir og slyddu­él en létt­skýjað á Norður- og Austur­landi - Vísir

#austurlandi#léttskýjað#slydduél#skúrir#norður
Hyggjast þrýsta samfélagsmiðlabanni í gegn alveg sama hvað kemur út úr opinberri úttekt
📅 29.04.2026 07:07:27 👁️ 1

Hyggjast þrýsta samfélagsmiðlabanni í gegn alveg sama hvað kemur út úr opinberri úttekt

#samfélagsmiðlabanni#opinberri#hyggjast#þrýsta#úttekt