Ekki tókst að klára umræðuna í gær eins og til stóð og því var blásið til aukaþingfundar í morgun. Í dag er síðasti dagurinn til að klára málið, eigi atkvæðagreiðslan að fara fram á tilsettum tíma.
Einnig fjöllum við um verðbólgutölurnar sem bárust í morgun frá Hagstofunni og ræðum við dómsmálaráðherra um fyrirhugaða fækkun lögregluembætta í landinu. Ráðherra segir að með því að einfalda yfirstjórn verði hægt að efla lögregluna í landinu og fjölga í liðinu.
Að auki segjum við frá sumarhretinu sem von er á í dag með snjókomu og vindi. Fuglafræðingur segir um áhyggjuefni að ræða.
Í sportpakkanum eru það svo sögusagnirnar um ráðningu Arons Pálmarssonar sem þjálfara FH sem verða í forgrunni.