Um 8.500 manns sem þurftu að yfirgefa heimili sín á Spáni vegna skógareldanna hafa nú fengið að fara aftur heim til sín. Sumir komu að húsum sínum óskemmdum og þó voru ekki allir svo heppnir.
Fólkið flúði heimili sín í Valdemaqueda og Robledo de Chavela í Avila-héraði og frá tveimur borgum nærri Madríd, San Martin de Valdeiglesias and Pelayos, á miðvikudaginn. Íbúar tveggja síðastnefndu borganna, um eitt þúsund manns, fá þó ekki að snúa aftur heim alveg strax.
Búið er að ná stjórn á eldunum, en enn á eftir að slökkva síðustu logana. Pedro Sanchez forsætisráðherra Spánar sagði að næstu klukkustundir gætu skorið úr um hvort hægt verði að slökkva alla eldana.
Nýir skógeldar blossa upp í Frakklandi
Yfirvöld í Gironde-héraði í Frakklandi segja að eldarnir séu farnir að róast þar en skógareldarnir vestan við Bordeaux héldust áfram stöðugir, þrátt fyrir hækkandi hita vegna fjórðu hitabylgju sumarsins sem nú gengur þar yfir.
Skógareldar hafa einnig blossað upp í suðausturhluta Frakklands í Var-héraði og þar þurftu um 600 manns að yfirgefa heimili sín í gær. Eldurinn kviknaði innan við degi eftir að slökkviliðsmenn náðu tökum á öðrum skógareldum í sama héraði.
Þá kviknaði skógareldur í Burgundy-héraði nærri Dijon, en hvorki manntjón né tjón á eignum varð í þeim skógareldum.
Hættan ekki enn yfirstaðin
Slökkviliðsmenn hafa einnig barist við skógarelda á grísku eyjunni Paros, og tveir slökkviliðsmenn létust á Krít og sá þriðji nærri grísku borginni Gytheio.
Hundruð hafa þurft að yfirgefa heimili sín og gististaði nærri ferðamannastöðum á suður Tyrklandi þar sem slökkviliðsmenn hafa sömuleiðis barist við skógarelda.
Hitabylgjur sumarsins hafa valdið gríðarlegum þurrki á stórum, gróðurmiklum svæðum í Evrópu í sumar. Þar af leiðandi hafa skapast kjöraðstæður fyrir skógarelda sem breiðst hafa hratt út þar sem eldur hefur kviknað.
Evrópusambandið hefur varað við því að eldhætta gæti skapast um miðja álfuna á komandi dögum vegna mikilla hita sem spáð er.