Arnar Þór Jónsson gagnrýnir Katrínu Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, eftir að Alþjóðaefnahagsráðið, World Economic Forum, birti myndband þar sem hún lýsir loftslagsbreytingum sem lífshættulegri alþjóðlegri heilbrigðiskreppu.
Myndbandið er opinber framleiðsla WEF og ber yfirskriftina „Climate change is becoming a global health emergency, warns Iceland’s former prime minister“, eða „Loftslagsbreytingar eru að verða alþjóðlegt neyðarástand í heilbrigðismálum, aðvörum fyrrverandi forsætisráðherra Íslands“.
Katrín er þar kynnt sem formaður Pan-European Commission on Climate and Health.
Segir loftslagskreppuna lífshættulega
Í myndbandinu segir Katrín loftslagskreppuna vera lífshættulega og að áhrif hennar sjáist nú þegar í hitabylgjum, þurrkum og flóðum sem hafi áhrif á líf og heilsu fólks.
Hún segir áhrifin jafnframt ná til vatnsöryggis, matvælaöryggis, matvælaframleiðslu, hreinlætis og vatnsbirgða.
„Ábyrgð hvers leiðtoga er að hugsa um öryggi borgaranna. Við getum ekki horft fram hjá því að loftslagskreppan hefur áhrif á það,“ segir Katrín í myndbandinu.
Þar kemur einnig fram að mannkynið standi frammi fyrir mörgum alþjóðlegum krísum, meðal annars stríðsátökum og útbreiðslu upplýsingaóreiðu, en að sérfræðingar telji loftslagsbreytingar vera þá ógn sem muni gnæfa yfir öðrum til lengri tíma.
In a World Economic Forum propaganda video, Iceland’s former prime minister claims „the climate crisis is a life-threatening crisis“—endangering food and water security.
„We are already seeing heat waves, droughts, floods that are impacting people’s lives and people’s health.“… pic.twitter.com/vs0N9P2jWA
— Wide Awake Media (@wideawake_media) July 20, 2026
Segir Katrínu hafa uppskorið fyrir þjónustu sína
Arnar Þór segir Katrínu „lifa draum allra þeirra sem líta á stjórnmálaþátttöku sem stökkpall inn í skattfrjáls og vel launuð alþjóðleg störf“.
Hann segir hana hafa verið dyggan þjón Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, meðan Covid-19 faraldurinn gekk yfir og uppskorið starf á alþjóðavettvangi þegar stjórnmálaferli hennar lauk árið 2024.
Arnar segir Katrínu kunna að „spila leikinn“ og sakar hana um að hafa ekki látið mögulega hagsmunaárekstra flækjast fyrir sér.
Hann vísar jafnframt til þátttöku hennar í lokuðum fundum WEF í Davos meðan hún gegndi ráðherraembætti.
„Í heljargreipum erlends skuggavalds“
Arnar lýsir WEF sem vettvangi þar sem ríkustu og valdamestu einstaklingar heims móti framtíðarstefnu án ábyrgðar gagnvart almenningi.
Hann segir þar unnið að því að færa völd í hendur sífellt færri og fjarlægari aðila, setja hagsmuni stórfyrirtækja ofar hagsmunum þjóðríkja og fá stjórnmálamenn til að samþykkja alþjóðlegar skuldbindingar sem sæeu ofar landslögum.
„Íslendingar eiga ekki að sætta sig við að innlend stjórnmál séu í heljargreipum erlends skuggavalds sem svarar ekki til neinnar ábyrgðar á Íslandi,“ skrifar Arnar.
Hann spyr hvaða máli íslenskar kosningar skipti ef æðstu ráðamenn þjóðarinnar þjóni erlendu valdi.
„Enginn getur þjónað tveim herrum.“
Segir Íslendinga þurfa að vakna
Arnar segir Íslendinga þurfa að vakna til meðvitundar og ábyrgðar og læra að greina mynstur, tengja saman punkta og þekkja hættumerki.
Hann gagnrýnir þá hugmynd að vandamál heimsins séu svo stór og hnattræn að almenningur geti ekkert gert annað en greitt meira og framselt vald til fjarlægra alþjóðlegra stofnana.
Fullvalda þjóð eigi ekki að sætta sig við að kjörnir fulltrúar hennar vinni að því, með leynimakki og leynisamtölum við erlenda ráðamenn, að svipta hana sjálfræði.