Jarðskjálftahrina sem hófst í Bárðarbungu í gærkvöldi hefur farið töluvert minnkandi og eins og staðan er núna eru ekki merki um að eldgos sé yfirvofandi.
Í nýrri tilkynningu frá Veðurstofu Íslands kemur fram að hrinan hafi verið í norðvesturhluta Bárðarbunguöskjunnar. Um 400 jarðskjálftar hafa mælst frá því að hrinan hófst, sá stærsti var af stærð 4,8 og varð kl. 20:14. Jarðskjálftavirknin hafi verið mest fram til um kl. 03:00 í nótt, en síðan hafi dregið úr henni, þó enn mælist jarðskjálftavirkni á svæðinu. Of snemmt sé að segja til um hvort hrinan sé að fjara út. Enginn gosórói mældist á svæðinu í nótt.
Kortið hér fyrir neðan, fylgir tilkynningu Veðurstofunnar og sýnir staðsetningu og stærð jarðskjálfta í Bárðarbungu síðustu 12 klukkutímana, frá kl. 21. Svarti hringurinn táknar staðsetningu öskjunnar.

Fram kemur að lokum í tilkynningu Veðurstofunnar að síðast hafi orðið sambærileg jarðskjálftahrina í Bárðarbunguöskjunni í janúar 2025. Vegna óvissu um framvindu atburðarins verði fluglitakóði áfram gulur.
Fram kemur á Facebook-síðu Eldfjalla- og náttúruvárhóps Suðurlands að ekki sé útilokað að kvikuinnskot hafi valdið virkninni í janúar 2025. Einnig hafi hrinan í gærkvöldi verið ein sú kröftugasta sem gengið hafi yfir í eldstöðinni frá eldgosinu í Holuhrauni haustið 2014.