Hvammsvirkjun verður gangsett árið 2030 gangi allt eftir, segir upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar. Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli landeigenda sem stefndu íslenska ríkinu og Landsvirkjun vegna Hvammsvirkjunar féll í dag og var íslenska ríkið sýknað af kröfu um að ógilda virkjanaleyfið.
Lögmaður stefnenda segir að málinu verði að öllum líkindum áfrýjað. Landeigendurnir muni þó ekki höfða þriðja málið.
Þetta er í annað sinn sem virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar ratar til dómstóla. Fyrra virkjunarleyfið var ógilt í Hæstarétti í fyrrasumar. Í kjölfarið lét umhverfisráðherra breyta lögum til þess að heimila áframhaldandi framkvæmdir og nýtt leyfi var gefið út á grundvelli þeirra laga. Nýja leyfið var veitt í desember, en í janúar höfðuðu landeigendur mál og fóru fram á ógildingu þess.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag líka kröfu ríkisins og Landsvirkjunnar um frávísun ógildingar úrskurðar frá 2018 um umhverfismat vegna Hvammsvirkjunar.
Þriðja málið verði ekki höfðað
Sif Konráðsdóttir, lögmaður landeigenda, segir málið flókið og eiga sér langan aðdraganda.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag líka kröfu ríkisins og Landsvirkjunnar um frávísun ógildingar úrskurðar frá 2018 um umhverfismat vegna Hvammsvirkjunar.
„Það sem þarna er mikilvægt er að dómurinn viðurkennir að landeigendurnir eigi rétt á því að fjalla um úrskurð sem var kveðinn upp 2018 í sambandi við umhverfismat virkjunarinnar. Þessi viðurkenning er mjög mikilvæg fyrir landeigendurna því að með hana geta þeir haldið áfram og þeir munu sjálfsagt leita áfrýjunar á þessari niðurstöðu,“ segir Sif.
Eruð þið með til skoðunar að höfða málið með öðrum hætti?
„Nei. Það verður ekki höfðað þriðja málið um Hvammsvirkjun. Ekki af hálfu minna umbjóðenda allavega.“
Landsvirkjun hefði ekki getað beðið um betri niðurstöðu
Þóra Arnórsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, segir orkufyrirtækið mjög ánægt með niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur.
„Öllum kröfum stefnenda var hafnað og dómurinn staðfestir líka að vinna við undirbúning Hvammsvirkjunar hafi verið fagleg, bæði af hálfu Landsvirkjunar og stjórnvalda. Heilt yfir er eiginlega ekki hægt að fara fram á meira í einum dómi,“ segir Þóra.
Engar hindranir séu í vegi fyrir Hvammsvirkjun í dag.
„Þetta breytir kannski í sjálfu sér ekki miklu einmitt núna, líka vegna þess hversu skýr dómurinn er og afdráttarlaus. Undirbúningsframkvæmdirnar ganga vel, hafa bara gengið mjög vel, öll leyfi liggja fyrir og ef allt gengur áfram að óskum þá stefnum við að því að gangsetja Hvammsvirkjun 2030.“
Þóra bendir á að flest kærumál vegna Hvammsvirkjunar snúist um málsmeðferð og þess háttar galla.
„En ekki að virkjuninni sjálfri. Ég held að það sé mikilvægt að horfa á það hversu góð virkjun þetta er, og eigum við ekki bara að vona að hún fari að mala gull fyrir okkur Íslendinga sem allra fyrst?“