Eliza Reid, rithöfundur og fyrrverandi forsetafrú, kemur fram í viðtali í ameríska spjallþættinum Kelly Clarkson Show. Tilefnið er kynning á Og svo varð ég forsetafrú sem er nýjasta bók Elizu. Á ensku er titill bókarinnar The First Lady Next Door.
Í kynningunni á Elizu kemur fram að hún hafi orðið ástfangin af íslenskum manni, Guðna Th. Jóhannessyni, í háskóla og flutt hingað til lands þar sem þau eignuðust fjölskyldu. Hún varð útivinnandi fjögurra barna móðir og fjölskyldan lifði einföldu og lágstemmdu lífi. Allt breyttist þegar Guðni ákvað að fara í forsetaframboð.
„Allt í einu var hún orðin forsetafrú og ferðaðist um heiminn,“ segir Clarkson meðal annars í kynningunni.
„Þú segir að þú hafir gjarnan verið í óraunverulegum aðstæðum, geturðu komið með dæmi?“ spyr Clarkson.
„Það eru þúsundir óraunverulegra aðstæðna, margar hverjar sem eru í bókinni. En einu sinni var mér boðið í Hvíta húsið, þá var Biden forseti. Í lok viðburðarins ákvað hann að hringja í móður mína sem býr á bóndabæ í Kanada, sem var mjög skemmtilegur atburður. Mamma hefur mjög gaman af því að segja vinum og nágrönnum frá þessu,“ svarar Eliza.
Þá segir Eliza að reynsla hennar sem forsetafrú hafi gert hana bjartsýnni en áður.
„Við fengum að hitta mikið af venjulegu fólki, kórstjóra til fjörutíu ára, konurnar sem prjóna litlar húfur á fyrirbura og fólk sem safnaði pening fyrir nýjum heilbrigðisbúnaði. Það gerði mig bjartsýnni en áður því ég áttaði mig á því að við erum öll að reyna að hjálpa hvert öðru. Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt gagn til að ýta hlutunum í rétta átt,“ segir hún.
The Kelly Clarkson Show er vinsæll bandarískur spjallþáttur sem hóf göngu sína árið 2019 og er stjórnað af söngkonunni Kelly Clarkson, sem öðlaðist frægð sem fyrsti sigurvegarinn í söngvakeppninni American Idol árið 2002.
Þátturinn sameinar viðtöl við frægt fólk, tónlistaratriði, leiki og hjartnæmar mannlegar sögur. Hann er þekktur fyrir hlýlegt, jákvætt og afslappað andrúmsloft sem hefur höfðað til breiðs hóps áhorfenda í Bandaríkjunum og víðar.