Jóhann Páll Jóhannsson segir að ríkisstjórnin ætli ekki að hvika frá stefnu um hallalaus fjárlög árið 2027.
„Meðalið er ábyrgur ríkisrekstur eftir áratug af lausatökum. Meðalið getur verið vont á bragðið þegar við erum að taka það inn, það þrengir að og hagkerfið er að kólna. En þetta er forsenda þess að við náum jafnvægi, að við sköpum forsendur til vaxtar og verðmætasköpunar til þess einmitt að byggja sterkara velferðarþjóðfélag á Íslandi.“
Jóhann Páll Jóhannsson, segir að ríkisstjórnin megi ekki láta undan kröfum stjórnarandstöðunnar um að horfa aftur til fyrri efnahagsstefnu. Halda verði kúrs til að vinna gegn verðbólgu og háum vöxtum.
„Þess vegna megum við aldrei láta undan kröfunum sem heyrast hér í þessum sal um að horfið verði aftur til þeirrar efnahagsstefnu og þeirrar óstjórnar sem kom okkur í þessa stöðu til að byrja með.“
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og þingmaður Viðreisnar, segir það vera í höndum þjóðarinnar að ákveða hvort aðildarviðræðum við ESB verði haldið áfram.
„Við skulum treysta þjóðinni til að svara þeirri spurningu. Við fáum rétt svar, hvort sem það verður já eða nei.“
Guðrún Hafsteinsdóttir segir þjóðina eiga rétt á skýrum upplýsingum áður en hún er beðin um að taka afstöðu til þess hvort Ísland eigi að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið.
„Forystufólk ríkisstjórnarinnar getur ekki sagt að þjóðin eigi að ráða en forðast um leið að upplýsa um hvað hún á að taka ákvörðun.“
Ísland sé og verði virkur þátttakandi í alþjóðlegu samstarfi – en samstarf sé ekki það sama og sambandsaðild.
„Við eigum ekki að færa okkur úr bílstjórasætinu í aftursætið þegar kemur að framtíð Íslands.“
Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður og formaður Sjálfstæðisflokksins, tekur fyrst til máls. Hún segir þjóðina hafa sent skýr skilaboð í sveitarstjórnarkosningum; stjórnvöld eigi að virða skattfé almennings og skila lausnum sem virka. Vandamálin hrannist upp í ríkisrekstrinum.
„Í stað þess að stemma stigu við vexti ríkisútgjalda og stuðla að jafnvægi velur ríkisstjórnin að verja dýrmætum tíma og fjármunum í verkefni sem svara ekki þeim brýna vanda sem heimili og fyrirtæki standa frammi fyrir,“ sagði Guðrún.
„Við vitum hvað þarf að gera til að ná niður vöxtum og verðbólgu. Það hefur ekkert með krónuna að gera og evran leysir ekki þann vanda. Hún er engin töfralausn.“
Þinglok eru á dagskrá í lok viku og stefnt er að því að þingmenn geti gengið út af þingfundi á föstudag beint í sumarfrí. Hins vegar ganga samningaviðræður um þinglok hægt og er ekki útilokað að þau dragist eitthvað.
Eflaust er enginn þingmaður spenntur fyrir því að endurtaka atburðarás síðasta sumars þegar þingi lauk ekki fyrr en um miðjan júlí. Ólíklegt þykir að það gerist en þau gætu dregist um einhverja daga miðað við stöðuna í dag.
Nokkur stór mál standa eftir, líkt og samgönguáætlun og fyrirhugað innviðafélag – auk fjármálaáætlunar sem þingið verður að klára að afgreiða fyrir þinglok.
Almennar stjórnmálaumræður fara venju samkvæmt fram á síðustu dögum þingsins. Þá ræða þingmenn til að mynda framvindu þingstarfa, stefnu ríkisstjórnarinnar og fjármál. Umræðurnar hefjast klukkan 19.40 og verða sýndar í beinni útsendingu á RÚV.
Þær skiptast í tvær umferðir og hver þingflokkur hefur átta mínútur í fyrri umferð og fimm mínútur í seinni umferð. Ræðumenn eru tveir þingmenn úr hverjum þingflokki, alls tólf, auk Guðmundar Inga Kristinssonar, sem er utan flokka. Hann talar í lok fyrri umferðar og hefur fimm mínútur.
Röð flokkanna í umræðunum og ræðumenn eru eftirfarandi:
- Sjálfstæðisflokkur: Guðrún Hafsteinsdóttir í fyrri umferð og Bryndís Haraldsdóttir í seinni umferð.
- Samfylkingin: Jóhann Páll Jóhannsson í fyrri umferð og Ása Berglind Hjálmarsdóttir í seinni umferð.
- Miðflokkurinn: Snorri Másson í fyrri umferð og Karl Gauti Hjaltason í seinni umferð.
- Viðreisn: Pawel Bartoszek í fyrri umferð og María Rut Kristinsdóttir í seinni umferð.
- Framsóknarflokkur: Stefán Vagn Stefánsson í fyrri umferð og Ingbjörg Isaksen í seinni umferð.
- Flokkur fólksins: Ásthildur Lóa Þórsdóttir í fyrri umferð og Sigurður Helgi Pálmason í seinni umferð.
- Þingmaður utan flokka: Guðmundur Ingi Kristinsson í fyrri umferð.