Starfsmenn Háskólans á Bifröst samþykktu fyrr í dag nýjan samskiptasáttmála. Í fréttatilkynningu frá skólanum segir að sáttmálinn hafi verið samþykktur með öllum greiddum atkvæðum á starfsmannafundi sem fram fór fyrr í dag.
Er sáttmálanum ætlað að vera haldreipi í öllum samskiptum starfsmanna innan háskólans og þannig efla vinnustaðamenningu hans.
Hann kemur í kjölfar þess að fyrr á þessu ári baðst Margrét Jónsdóttir Norðfjörð rektor skólans lausnar frá störfum vegna vantrausttillögu sem starfsmenn skólans samþykktu á hana, eftir að í ljós kom að rektor, deildarforseti og rannsóknarstjóri skólans hefðu notað gervigreindarforritið Claude til að meta réttmæti höfundarstöðu í vísindagreinum hjá akademískum starfsmönnum.
Hrósi og sveigjanleika gert hátt undir höfði
Í sáttmálanum kennir ýmisa grasa, en þar segir meðal annars að lögð verði áhersla á virðingu, liðsheild og umhyggju og að séstaklega verði hlustun, hrósi og stuðningi gert hátt undir höfði.
Sömuleiðis verði skýrleiki við ákvarðanatöku, hreinskiptni, lausnamiðunar og virðing fyrir mörkum og verkferlum höfð að leiðarljósi.
Í sáttmálanum er einnig skýrt tekið fram hvaða hegðun sé ekki leyfileg á vinnustaðnum en það er t.d. að gera lítið úr tilfinningum eða árangri samstarfsfólks, ræða viðkvæm málefni í áheyrn annarra, eða fara framhjá viðurkenndum boðleiðum.
„Sáttmálinn er mikilvægur áfangi á leið. Við erum framsækinn og nemendamiðaður háskóli með skýra sérstöðu og markverða hlutdeild í íslensku háskólasamfélagi. Við getum borið höfuðið hátt, en verðum auðvitað líka að minna okkur á það reglulega á hvaða grunni við stöndum. Sáttmálinn er okkur mikilvæg viðspyrna upp á við og áfram veginn,” er haft eftir Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur, rektors Háskólans á Bifröst í tilkynningunni.