Formaður Landssambands smábátaeigenda segir skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa um banaslys í mynni Patreksfjarðar sláandi. Ljóst sé að margir þættir hafi brugðist.
Miklir annmarkar voru á frágangi björgunarbáts í strandveiðibátnum Orminum langa sem sökk í júní í fyrra. Magnús Þór Hafsteinsson, sjómaður og fyrrverandi þingmaður, fórst í slysinu.
Kjartan Páll Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda, segir það hafa verið þungt og erfitt að lesa rannsóknarskýrsluna.
„Þarna erum við ekki að tala um einhvern veikan hlekk heldur virðist bara öll keðjan vera meira og minna í skralli.“
Í skýrslunni kemur fram að umtalsverðar breytingar höfðu verið gerðar á Orminum langa sem ekki voru í samræmi við skráningu. Veður og sjólag var slæmt og hættulegt smábátum. Þá var eftirlit með gúmmíbjörgunarbáti ófullnægjandi og margt sem kom í veg fyrir að hann blési upp.
Kjartan segir málið að mörgu leyti keimlíkt banaslysi í Aðalvík fyrir áratug síðan en þá skapaðist einnig talsverð umræða um eftirlit með björgunarbátum.
„Það er erfitt að benda á einhverja einstaka þætti. Það eru rosalega margir sem þurfa að draga lærdóm af þessu. Það eru eftirlitsaðilar og stjórnvöld og stefnumótendur og að sjálfsögðu við skipstjórarnir líka.“
Samgöngustofa hefur þegar ráðist í úrbætur og hert eftirlit með skoðunarstöðvum.