Skipstjóri norsks flutningaskips hefur verið handtekinn vegna alvarlegs sjóslyss við Tjörn í Vestur-Svíþjóð. Mæðgur létu lífið í slysinu og feðgar í sömu fjölskyldu slösuðust alvarlega. Skipstjórinn er grunaður um manndráp af gáleysi.
Slysið varð á þriðjudag. Talið er að norska flutningaskipið Misje Verde hafi siglt á tómstundabát fjögurra manna fjölskyldu sem var þar við siglingar.
Kafarar sænsku strandgæslunnar fundu móður og dóttur fjölskyldunnar látnar nærri skipbrakinu í gær eftir nær tveggja daga leit. Faðirinn og sonur hans fundust fljótt eftir slysið og voru fluttir á sjúkrahús. Þeir eru alvarlega slasaðir en ástand þeirra er stöðugt samkvæmt lögreglunni í Svíþjóð.
Grunaður um stórkostlegt gáleysi
Lögreglan vinnur að því að komast að því hvernig slysið varð og hver olli því. Skipstjóri Misje Verde er grunaður um að hafa sýnt af sér stórkostlegt gáleysi með þeim afleiðingum að flutningaskipið hafnaði á litlum báti fjölskyldunnar.
Skipstjórinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald þar til frekari upplýsingar liggja fyrir. Saksóknarar í Svíþjóð segja ákvörðun um gæsluvarðhald til að koma í veg fyrir að hann yfirgefi Svíþjóð þar sem hann sé erlendur ríkisborgari.
Þar að auki sé hætt við því að hann hafi áhrif á rannsókn málsins, til dæmis vitni, ef hann gangi laus.
„Hörmulegt slys og áfall fyrir alla“
Roald Misje, forstjóri fyrirtækisins sem á norska flutningaskipið, segir hvorki skipstjórann né sænska hafnsögumanninn hafa orðið vara við neitt óvenjulegt í aðdraganda slyssins.
„Þetta er afar hörmulegt slys og mikið áfall fyrir alla,“ segir Misje í samtali við fjölmiðla.
Flutningaskipið hefur verið kyrrsett á meðan rannsókn slyssins stendur yfir. Lögreglan í Svíþjóð segir frekari upplýsingar vanta til þess að hægt sé að draga upp skýrari mynd af atburðarásinni. Flókið sé að komast að því nákvæmlega hvernig slysið varð.