Lögregla og sjúkrabílar voru kallaðir til vegna áreksturs í Hamraborg í Kópavogi síðdegis.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu missti ökumaður stjórn á bíl sínum og hafnaði uppi á umferðareyju.
Einn var fluttur af vettvangi með sjúkrabíl en tildrög slyssins eru ókunn.