Ákvörðun lögreglu að loka skemmtistaðnum Exit aðfaranótt laugardags var óhófleg og ólögmæt að mati Anibal Hernandez, eiganda skemmtistaðarins.
Aðgerðir lögreglu ollu fyrirtækinu, starfsfólki þess og samstarfsaðilum verulegu tjóni, auk þess sem þær stefndu orðspori staðarins í hættu, segir hann í yfirlýsingu.
Anibal segir lögmann félagsins hafa verið fenginn í málið auk þess sem hann sjálfur hafi óskað eftir aðkomu Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) að málinu.
„Enda tel ég að málið snerti ekki aðeins Exit heldur einnig grundvallarhagsmuni fyrirtækja í veitinga- og skemmtanageiranum,“ segir hann.
Félagið muni fara fram á skaðabætur vegna þess „fjárhagslega og orðsporslega tjóns“ sem lokunin olli, reynist hún ekki lögmæt.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði Exit í samstarfi við Skattinn vegna gruns um skattalagabrot og vegna þess að dyraverðir voru ekki með starfsleyfi, að sögn lögreglu. Exit var á meðal þriggja veitinga- og skemmtistaða sem lokað var aðfaranótt laugardags.
Segir dyraverði hafa sýnt fram á leyfi
Anibal segir lögreglu og Skattinn hafa óskað eftir skriflegum ráðningarsamningum dyravarða sem starfi beint fyrir Exit þegar skrifstofa félagsins hafi verið lokuð og bókari ekki við störf. Þrátt fyrir það hafi ekki verið veittur frestur til að afla gagna eða skýra málavexti áður en gripið hafi verið til lokunar.
Hann segir engar athugasemdir hafa verið gerðar við hæfi dyravarðanna. Þeir hafi framvísað skírteinum til lögreglu sem sýndu að þeir væru með starfsleyfi og störfuðu fyrir fyrirtæki sem hafi öll tilskilin leyfi til reksturs.
Anibal segir það vekja furðu að lögregla hafi gripið til „alvarlegasta úrræðis sem stjórnvöld hafa yfir að ráða, að loka starfseminni tafarlaust“ og spyr hvort ákvörðunin samræmist lögum.