Sigurgeir Svanbergsson ætlar að synda niður Lagarfljót á morgun, fyrstur manna sem vitað er um. Sundið er 50 kílómetrar og Sigurgeir áætlar að það muni taka hann allt að sólarhring.
„Ég spyr mig alltaf að því sama þegar ég byrja: af hverju í ósköpunum er ég að þessu?“ segir Sigurgeir.
Þegar blaðamaður ræddi við hann var Sigurgeir á leiðinni austur en hann stefnir á að hefja sundið milli klukkan sex og átta annað kvöld.
Alltaf að leita að skrýtnum verkefnum
Hann segir sundið fyrst og fremst vitundarvakningu og áheitasöfnun fyrir Píeta samtökin.
„Hin ástæðan er sú að ég er bara þannig gerður að ég er alltaf að leita mér að einhverjum skrýtnum verkefnum. Þetta fannst mér einstaklega skrýtið og ég hafði áhuga á að athuga hvort þetta væri hægt.“
Hann segir það að synda niður Lagarfljót vera eina margra skrýtinna hugmynda sem hann lumi á. Hugmyndin kviknaði eftir að vinur hans sigldi niður fljótið á kajak. „Þá fór ég að hugsa, ef það er hægt að róa þetta þá er hægt að synda þetta.“
Við hafi tekið hugmyndavinna um hvernig hann færi að þessu. „Fræðilega séð er þetta hægt svo núna komumst við bara að því hvort þetta sé hægt raunverulega.“
Björgunarsveitarmaður á sæketti og læknir á kajak
Sigurgeir segir sundferð morgundagsins hafa verið mörg ár í undirbúningi. Hann sé með stóran hóp af fólki á bak við sig. Með honum siglir þjónustubátur þar sem hann mun fá mat. Í bátnum verður fólkið sem þekkir Sigurgeir best og fylgist með ástandi hans.
Björgunarsveitin Brimrún á Eskifirði siglir á bátum fyrir framan Sigurgeir og sér til þess að hann stefni ekki í ógöngur. Skyggnið í vatninu er hérumbil ekki neitt og þar af leiðandi ómögulegt að sjá grynningar og sker sem gætu leynst í vatninu.
Björgunarsveitin á Fárskúrsfirði verður þar að auki með mann á jet ski sem sér um neyðartilvik komi til þess. Þá siglir læknir samferða Sigurgeiri á kajak.
Nærir sig með nammi og kók
Síðasta árið hefur Sigurgeir synt mikið í sundlaugum og í sjó og passað að verða kalt reglulega til að undirbúa sig.
Á meðan á sundinu stendur ætlar Sigurgeir að taka um 20 sekúndna pásu til að borða einföld kolvetni; nammi og kók og vökvablöndu með prótíni, steinefnum og amínósýrum.
Þegar Sigurgeir kemur að landi á þriðjudag við Stóra-Steinsvað í Hjaltastaðaþinghá ætlar hann að kveikja varðeld sem vísar í ljósið sem Píeta samtökin standa fyrir. Samtökin verða með varning til sölu og veitingar verða í boði fyrir viðstadda.
„Þannig að það verður alveg smá partýstemning þarna. En ég hugsa að ég stoppi nú ekki lengi. Mér verður líklega komið fyrir í hita einhvers staðar mjög fljótt.“
Aðrar áskoranir í Lagarfljóti en í Ermarsundi
Sigurgeir segir þessa þrekraun verða allt öðruvísi en þá síðustu, þegar hann reyndi að synda yfir Ermasund.
„Ég þarf til dæmis ekki að hafa áhyggjur af því að það sem gerðist í Ermasundinu gerist þarna, sem er gott. Þar mynduðust aðstæður sem við réðum ekki við og skipstjórinn tók þá ákvörðun að stoppa sundið.“
Lagarfljótið er aftur á móti kaldara en Ermarsund og þar að auki ferskvatn sem gerir það að verkum að erfiðara er að fljóta í því. Í Ermarsundi er líka enginn Lagarfljótsormur en Sigurgeir segist mikið hafa verið spurður út í orminn fræga í aðdraganda sundsins.
„Planið mitt er að koma með hann upp hinum megin og enda þessa goðsögn í eitt skipti fyrir öll.“
Sigurgeir bendir á Instagram-reikninginn Til hvers að sigla þar sem hægt verður að fylgjast með sundferð hans sem hefst á morgun.