Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir myndbirtingu og færslu þar sem hún stendur með breska hægri öfgamanninum Nigel Farage og fagnar kosningaúrslitum. Er færslan sögð dapurleg enda sé málflutningur Farage ógeðfelldur.
Fagnar sigri öfgaflokks
„Til hamingju, getum við öll komið aftur til Bretlands núna?,“ segir Dorrit í færslunni og merkir hana bæði Nigel Farage og hægri öfgaflokki hans Reform UK. „Nigel mun verða ykkar forsætisráðherra næst MUN GERA BRETLAND FRÁBÆRT AFTUR!“ segir hún og vitnar í slagorð Donald Trump Bandaríkjaforseta og MAGA hreyfingarinnar.
Færslan hefur heldur betur fallið í grýttan jarðveg og margir gagnrýnt forsetafrúnna fyrrverandi.
Sjá einnig:
Nigel Farage styður nýnasista og smættar minnihlutahópa á Cameo
„Forsetafrúin fyrrverandi Dorrit Moussaieff spyr Nigel Farage hvort „okkur“ sé nú óhætt að snúa aftur til Bretlands þar sem hann ætli að „make Britain great again“,“ segir Illugi Jökulsson, blaðamaður og rithöfundur í færslu á samfélagsmiðlum.
Dapurlegt
Virðist mörgum vera orða vant. Til að mynda fjölmiðlamönnunum Agli Helgasyni og Felix Bergssyni sem segja einfaldlega „Úff.“
„Jahérna,“ segir leikarinn Pálmi Gestsson. „Dapurlegt,“ segir sagnfræðingurinn Guðmundur Magnússon.
Ólafur Ragnar dreginn inn í umræðuna
Fleiri taka til máls og gagnrýna Dorrit. Er eiginmaður hennar Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti dreginn inn í umræðurnar.
Sjá einnig:
34 samnemendur Nigel Farage lýsa ógeðfelldu orðalagi hans – „Hitler hafði rétt fyrir sér!“
„Ömurlegt. Útskýrir líka andstöðu Ólafs Ragnars gegn samstarfi og einingu í Evrópu. Allt fyrir auðræðið,“ segir einn.
„Farage er ótrúlega ógeðfelldur maður en verri er stefnuskrá hans eins og lygavefurinn sem hann spann upp til að koma bretum úr ESB. Mikið er þetta viðeigandi að fyrrum forsetafrú Ólafs Ragnars skuli vera að flaðra upp um þennan mann….Loksins sér í skítlega eðlið sem ÓRG varð svo tíðrætt um,“ segir annar.