Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB - DV

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB - DV

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB - DV

ESB hefur um áratugaskeið haft ákveðna sérstöðu sem vettvangur fyrir samstarf ríkja. Ástæðan er sú að sambandið er ekki hefðbundin alþjóðastofnun. Þetta sést best á því hvernig samstarfið er byggt upp. Á sumum sviðum deila ríkin raunverulegu valdi með sameiginlegum stofnunum, en á öðrum halda þau fast í sjálfsákvörðunarrétt sinn og taka ákvarðanir sameiginlega, oft með einróma samþykki.

Þetta útskýrir líka hvers vegna umræðan um sambandið virkar oft ruglingsleg og flókin því erfitt er að lýsa lagalegu eða pólitísku eðli þess með einu hugtaki sem nær utan um starfsemi þess í heild.

Sameiginlegt vald

Á tilteknum sviðum hafa aðildarríki ESB ákveðið að ganga lengra en almennt gerist í alþjóðasamstarfi og deila hluta af ríkisvaldi sínu með sameiginlegum stofnunum sem geta sett reglur sem eru bindandi og gilda beint innan ríkjanna sjálfra.

Í fræðunum er því lýst svo að ESB hafi yfirþjóðlegt vald, einkum á sviði innri markaðarins. Þar er markmiðið að skapa eitt sameiginlegt efnahagssvæði þar sem vörur, þjónusta, fjármagn og fólk geta flust frjálst milli landa. Til að slíkt kerfi virki þurfa reglurnar að vera samræmdar og gilda jafnt alls staðar og með sama hætti.

Þess vegna hafa stofnanir ESB fengið heimild til að setja reglur á þessu sviði. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins leggur fram tillögur, en Evrópuþingið og Ráðherraráðið taka endanlegar ákvarðanir. Oft er það gert með meirihluta, ekki einróma samþykki. Þannig geta einstök ríki orðið bundin af reglum sem þau studdu ekki sjálf.

Annað sem skilur samstarfið frá hefðbundnu milliríkjasamstarfi er að ESB reglur geta haft bein áhrif í aðildarríkjunum og ganga jafnvel framar landslögum ef árekstur verður.

Dómstóll Evrópusambandsins hefur mótað þessar meginreglur og tryggt að þær séu virtar. Þetta er kjarninn í yfirþjóðlegu eðli ESB: reglur innri markaðarins eru lifandi sjálfstæður réttur sem hefur bein áhrif á borgarana sem búa í aðildarríkjum þess.

Evran

Evran er einnig dæmi um yfirþjóðlegt samstarf, en hún er sameiginlegur gjaldmiðill þeirra aðildarríkja sem hafa valið að taka upp hina sameiginlegu peningastefnu. Þannig hafa ákvarðanir um vexti, peningamagn í umferð o.fl. verið í aðalatriðum færðar frá aðildarríkjunum til Evrópska Seðlabankans, sem tekur ákvarðanir fyrir allt evrusvæðið. Þótt ekki hafi öll aðildaríkin ákveðið að taka upp evru, er erfitt að komast að annarri niðurstöðu en að vald Evrópska Seðlabankans sé yfirþjóðlegt fyrir þau ríki sem hana hafa tekið upp, þótt ríkisfjármál og skattastefna séu enn að mestu á forræði einstakra ríkja.

Staða Íslands

Þótt Ísland sé ekki aðili að ESB er landið engu að síður hluti af innri markaðnum í gegnum EES-samninginn. Það þýðir að Ísland tekur upp stóran hluta af reglum ESB á þessu sviði og tryggir að þær gildi hér á landi. Með þessu hefur Ísland tryggt sér markaðsaðgang að einu af stærstu hagkerfum heimsins.

Í reynd eru skyldurnar að þessu leyti hliðstæðar og hjá aðildarríkjum ESB að frátöldum reglum á sviði sjávarútvegs og landbúnaðar sem ekki eru hluti EES. Þá er Ísland ekki hluti af sameiginlegri viðskiptastefnu EB og ekki þátttakandi í tollabandalaginu. Að þessu frátöldu liggur munurinn liggur fyrst og fremst í hvernig reglurnar verða hluti af landsrétti. Í ESB geta þær haft bein réttaráhrif, en á Íslandi þarf að innleiða þær í gegnum innlendar stofnanir áður en þær fá slík réttaráhrif á Íslandi.

Mikilvægur munur er líka sá að aðildarríki ESB taka þátt í að móta reglurnar frá upphafi. Ísland gerir það ekki með sama hætti, en þarf engu að síður að innleiða þær og tryggja þeim gildi í landsrétti.

Ríkin halda í taumanna

Þegar litið er út fyrir innri markaðinn breytist myndin. Þá líkist samstarfið í ESB meira hefðbundnu milliríkjasamstarfi, þar sem ríkin halda í aðalatriðum áfram að ráða för og ákvarðanir byggjast á samkomulagi þeirra.

Þetta á til dæmis við um utanríkis- og öryggismál. Þar er meginreglan sú að allar mikilvægar ákvarðanir þurfa samþykki allra aðildarríkja. Í raun hefur hvert ríki því neitunarvald. Yfirþjóðlegt hlutverk stofnana ESB er einnig takmarkaðra á þessu sviði. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur ekki sama frumkvæðisrétt og á sviði innri markaðarins, Evrópuþingið hefur minni áhrif og lögsaga dómstóls ESB takmörkuð.

Í stað bindandi laga snýst samstarfið á sviði utanríkis- og öryggismála frekar um að samræma stefnu og taka sameiginlegar ákvarðanir þegar samstaða næst. Svipuð staða er uppi í varnarmálum. Þótt ESB hafi þróað með sér ákveðið samstarf á því sviði, stjórna ríkin eigin herafla, ef þau hafa á annað borð her. Þátttaka í aðgerðum er er á forræði ríkja og enginn eiginlegur ESB-her er til staðar og fátt sem bendir til að svo verði í bráð.

Þátttaka Íslands í þessu samstarfi hefur engin áhrif á aðild Íslands að NATO enda er yfirgnæfandi meirihluti aðildarríkja ESB líka í NATO og mörg þeirra hafa gert sérstaka samninga við Bandaríkin að auki um samstarf á sviði hernaðar og varnarmála, rétt eins og Ísland. Þetta getur því vel farið saman.

Samstarfið á sviði utanríkis-, öryggis- og varnarmála líkist því fyrst og fremst hefðbundnu varnarsamstarfi milli ríkja, sem ríki ákveða að taka þátt í. Þó skal bent á að á undanförnum árum hefur aukist umræða um nánara og dýpra samstarf á þessum sviðum á vettvangi ESB.

Takmarkað vald á fleiri sviðum

Á fleiri sviðum má sjá að ríkin halda fast í sjálfsákvörðunarrétt sinn. Þetta á til dæmis við um skattamál. Þótt ESB hafi sett ákveðnar reglur, til dæmis um virðisaukaskatt, eru beinir skattar enn að mestu í höndum ríkjanna. Mikilvæg mál krefjast oft einróma samþykkis, sem styrkir stöðu ríkjanna.

Sama má segja um velferðarmál, heilbrigðisþjónustu og menntakerfi. Þar hefur ESB fyrst og fremst stuðningshlutverk ef ríki vilja stuðning. ESB getur hvatt til samstarfs á þessum sviðum og sett ákveðin viðmið, en ríkin bera áfram ábyrgð á kerfunum sjálfum.

Á sviði lögreglu- og dómsmála er myndin flóknari. Þar hefur samstarfið þróast í átt að meiri samþættingu, sérstaklega í baráttu gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi. Samt sem áður halda ríkin áfram mikilvægu sjálfstæði, sérstaklega þegar kemur að refsirétti ríkjanna.

Eitt þekktasta dæmið á þessu sviði er Schengen-samstarfið, sem Ísland tekur nú þegar þátt í. Þar er um að ræða samstarf um landamæraeftirlit og löggæslu yfir landamæri, en ábyrgðin er engu að síður að mestu leyti í höndum ríkjanna sjálfra.

Aðildarríkin ráða för

Þrátt fyrir að ESB hafi yfirþjóðlegt vald á ákveðnum afmörkuðum sviðum er mikilvægt að hafa í huga að grunnurinn að samstarfinu er alltaf vilji aðildarríkjanna, enda hefur ESB ekki valdheimildir aðrar en þær sem aðildarríkin hafa fengið því. Allar breytingar á sambandinu sem einhverju varða krefjast samþykkis allra aðildarríkjanna.

Breytingar á stofnsáttmálum ESB þurfa einróma samþykki og fara í gegnum þjóðþing eða þjóðaratkvæðagreiðslur í hverju landi. Þegar allt kemur til alls, eru það því að lokum aðildarríkin sem ráða því hversu langt samstarfið gengur.

Að lokum

Af framangreindu leiðir að ESB er í raun blanda af yfirþjóðlegu kerfi og hefðbundnu milliríkjasamstarfi. Á sviðum þar sem samræming er talin nauðsynleg, ekki síst með tilliti til réttarstöðu einstaklinga og aðila í atvinnurekstri, eins og á við á innri markaðnum, hafa ríkin samþykkt að deila valdi með ESB og heimila stofnunum að setja reglur sem fá beint gildi. Á öðrum sviðum, sem segja má að snerti kjarna fullveldis í ríkara mæli, halda þau hins vegar um stjórnvölinn sjálf. Þá hafa þau fullt forræði á öllum málefnum sem falla utan ESB samstarfsins.

Þetta jafnvægi er ekki tilviljun, enda endurspeglar það raunverulegan vilja ríkjanna til að vinna saman þar sem það skilar ávinningi, án þess þó að ganga of langt í að afsala sér stjórn eigin málefna umfram það sem samstarfið krefst til að það nái tilgangi sínum.

Höfundur er hæstaréttarlögmaður.

#björgvinsson #davíð #skrifar #yfirþjóðlegt #þór


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/eyjan/2026/4/29/david-thor-bjorgvinsson-skrifar-yfirthjodlegt-vald-esb/

📰 Aðrar fréttir

Roy Hattersley, former Labour deputy leader, dies aged 93
📅 14.06.2026 👁️ 0
Roy Hattersley, former Labour deputy leader, dies aged 93
Roy Hattersley, who served as deputy leader of the Labour Party under Neil Kinnock, has died at the age of 93.Prime Minister Sir Keir Starmer paid tri...
Bandaríkin og Íran skrifa undir friðarsamning
📅 14.06.2026 👁️ 0
Bandaríkin og Íran skrifa undir friðarsamning
Friðarsamkomulag hefur náðst milli Bandaríkjanna og Íran samkvæmt Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistans og Donald Trump Bandaríkjaforseta. Samkvæ...
Social media restrictions to end 'system failing our kids', Starmer says
📅 14.06.2026 👁️ 0
Social media restrictions to end 'system failing our kids', Starmer says
The prime minister has said he will "call time on a system that's failing our kids" as he prepares to announce changes to social media restrictions fo...
Trump segir sam­komu­lag hafa náðst við Íran - Vísir
📅 14.06.2026 👁️ 0
Trump segir sam­komu­lag hafa náðst við Íran - Vísir
„Samkomulagið við Íslamska lýðveldið Íran er nú frágengið,“ skrifaði Trump á samfélagsmiðlinumTruth Social. „Ég heimila hér með að fullu opnun Hormúss...
Klaustrið í Garðabæ í niðurníðslu og býður upp á slysahættu
📅 14.06.2026 👁️ 0
Klaustrið í Garðabæ í niðurníðslu og býður upp á slysahættu
Húsið hefur staðið autt um þónokkurt skeið og liggur undir skemmdum. Brotnar rúður, óhreinindi og glerbrot út um allt.Miðað við umganginn innanhúss er...
Leigubílastöðin komin á leiðarenda
📅 14.06.2026 👁️ 0
Leigubílastöðin komin á leiðarenda
Húsnæði Bifreiðastöðvar Oddeyrar var flutt í lögreglufylgd frá Strandgötu á Akureyri yfir í Jólagarðinn í Eyjafjarðarsveit í kvöld. Stöðva þurfti umfe...
Oliver Tree látinn 32 ára að aldri - Vísir
📅 14.06.2026 👁️ 1
Oliver Tree látinn 32 ára að aldri - Vísir
Slysið er sagt hafa átt sér stað á sunnudagsmorgun í suðvesturhluta Rio de Janeiro og um hafi verið að ræða árekstur tveggja þyrla. Sex hafi látist og...
Tólf létust í flugslysi í Missouri í Bandaríkjunum
📅 14.06.2026 👁️ 1
Tólf létust í flugslysi í Missouri í Bandaríkjunum
Flugvél sem flutti fallhlífastökkvara hrapaði í dag í Missouri-ríki í Bandaríkjunum, með þeim afleiðingum að allir tólf farþegar vélarinnar létust. Þe...
Lét Netanjahú heyra það í sím­tali þeirra: „Ég varð svo brjálaður“ - Vísir
📅 14.06.2026 👁️ 1
Lét Netanjahú heyra það í sím­tali þeirra: „Ég varð svo brjálaður“ - Vísir
Árásin hefur flækt friðarviðræður Íran og Bandaríkjanna en Trump fullyrðir að áfram sé stefnt að því að skrifa undir samkomulag í dag. Þrír eru sagðir...
Assisted dying returns to parliament as MP urges peers to 'finish the job'
📅 14.06.2026 👁️ 1
Assisted dying returns to parliament as MP urges peers to 'finish the job'
A fresh attempt to legalise assisted dying in England and Wales has been launched, with the MP behind the plan telling the BBC she wanted to "finish t...
Leigubílastöðin flutt í kvöld
📅 14.06.2026 👁️ 1
Leigubílastöðin flutt í kvöld
„Ef þetta gengur upp þá verð ég voðalega glaður,“ segir Benedikt Ingi Grétarsson, eigandi Jólagarðsins.Húsnæði Bifreiðastöðvar Oddeyrar verður flutt í...
Umdeildir bardagar í Hvíta húsinu í kvöld
📅 14.06.2026 👁️ 1
Umdeildir bardagar í Hvíta húsinu í kvöld
Allt er til reiðu fyrir umdeilt UFC-bardagakvöld sem verður haldið við Hvíta húsið í Washington í kvöld. Viðburðurinn er liður í að fagna 250 ára afmæ...
Fór í hart eftir að vinnuveitandinn sektaði hann - DV
📅 14.06.2026 👁️ 1
Fór í hart eftir að vinnuveitandinn sektaði hann - DV
Kærunefnd húsamála hefur komist að þeirri niðurstöðu að leigusali skuli endurgreiða fyrrum leigjanda sínum og starfsmanni ofgreidda leigu og þar að au...
Protesters clash with police ahead of G7 summit in Geneva
📅 14.06.2026 👁️ 1
Protesters clash with police ahead of G7 summit in Geneva
Swiss police deployed a water cannon and fired tear gas to disperse anti-G7 protesters after clashes.
11 skydivers and pilot killed in US plane crash
📅 14.06.2026 👁️ 1
11 skydivers and pilot killed in US plane crash
Eleven skydivers and one pilot have been killed in a plane crash in the US state of Missouri, officials said.The airplane, which was leased by a skydi...
Heimsborgin fór á annan endann eftir sögulegan sigur - Misjafnar undirtektir við hamingjuóskum Trump - Myndir og myndbönd - DV
📅 14.06.2026 👁️ 1
Heimsborgin fór á annan endann eftir sögulegan sigur - Misjafnar undirtektir við hamingjuóskum Trump - Myndir og myndbönd - DV
Óhætt er að segja að gleðin hafi verið við völd í New York í Bandaríkjunum síðan í gærkvöldi þegar New York Knicks tryggðu sér sinn fyrsta meistaratit...
Svæðið „lifnar allt við“ í góða veðrinu
📅 14.06.2026 👁️ 1
Svæðið „lifnar allt við“ í góða veðrinu
„Við finnum það að þá lifnar allt svæðið við, það eru ekki bara þessir hörðustu sem vilja fara í golf heldur allur almenningur og þeir sem hafa einhve...
Nýtt björgunarskip komið til heimahafnar á Vopnafirði - DV
📅 14.06.2026 👁️ 1
Nýtt björgunarskip komið til heimahafnar á Vopnafirði - DV
Fyrr í dag kom björgunarskipið Sveinbjörn Sveinsson, það sjöunda í röð nýrra björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar, til heimahafnar á Vopnaf...
11 skydivers and pilot killed in plane crash
📅 14.06.2026 👁️ 1
11 skydivers and pilot killed in plane crash
Eleven skydivers and one pilot have been killed in a plane crash in the US state of Missouri, officials said.The airplane, which was leased by a skydi...
Tólf fórust þegar flug­vél hrapaði í Missouri - Vísir
📅 14.06.2026 👁️ 1
Tólf fórust þegar flug­vél hrapaði í Missouri - Vísir
Um var að ræða einkaflugvél sem sneri við eftir flugtak frá Butler Memorial-flugvellinum og hrapaði síðar við hraðbraut nærri Kansas-borg. Staðarmiðil...
New Animal Welfare Rules ban giving away puppies and kittens under two months old
📅 14.06.2026 👁️ 1
New Animal Welfare Rules ban giving away puppies and kittens under two months old
People in Spain, including here in the Canary Islands, can no longer give away puppies or kittens under two months old, following the enforcement of n...
„Ég hafði áhuga á að athuga hvort þetta væri hægt”
📅 14.06.2026 👁️ 1
„Ég hafði áhuga á að athuga hvort þetta væri hægt”
Sigurgeir Svanbergsson ætlar að synda niður Lagarfljót á morgun, fyrstur manna sem vitað er um. Sundið er 50 kílómetrar og Sigurgeir áætlar að það mun...
Swiss vote against proposal to cap population at 10 million
📅 14.06.2026 👁️ 1
Swiss vote against proposal to cap population at 10 million
Voters in Switzerland have rejected a proposal to limit the country's population to 10 million.Results showed nearly 55% of participants voted against...
Ósammála um íbúðaþörf á Langanesi
📅 14.06.2026 👁️ 1
Ósammála um íbúðaþörf á Langanesi
Íbúðafélagið Brák hefur byggt fjórar íbúðir í Langanesbyggð á síðustu árum. Þær fóru strax í leigu og að sögn oddvita sveitarstjórnar er þörf fyrir fl...
Trump prepares to host UFC cage fights on White House lawn
📅 14.06.2026 👁️ 1
Trump prepares to host UFC cage fights on White House lawn
When the Ultimate Fighting Championship (UFC) heads to the White House on Sunday for the first-ever professional sporting event at the US presidential...
Mennt er máttur – og lengir lífið
📅 14.06.2026 👁️ 2
Mennt er máttur – og lengir lífið
Mennt er máttur – og lengir lífið Karl­ar með há­skóla­gráðu lifa tæp­lega fjór­um ár­um leng­ur en þeir sem eru með grunn­skóla­próf. Thor Asp­e­lund...
UK electric car sales target set to be weakened
📅 14.06.2026 👁️ 1
UK electric car sales target set to be weakened
The UK government is set to water down its target for how many new cars that are sold need to be electric vehicles (EVs).Under the current rules, 80% ...
Israeli military says Hezbollah targets struck in Beirut
📅 14.06.2026 👁️ 1
Israeli military says Hezbollah targets struck in Beirut
An Israeli air strike on the southern suburbs of Lebanon's capital Beirut has put further pressure on attempts for a US-Iran deal to end the war, alth...
Klara í Nylon er framúrskarandi
📅 14.06.2026 👁️ 1
Klara í Nylon er framúrskarandi
Klara í Nylon er framúrskarandi Mynd: Fjölmennasta útskrift í sögu skólans Aldrei í sögu Háskólans á Bifröst hefur annars eins fjöldi verið útskrifaðu...
Umferðarslys í Mývatnssveit
📅 14.06.2026 👁️ 1
Umferðarslys í Mývatnssveit
Þrír hlutu minniháttar meiðsl þegar tveggja bíla árekstur varð á Þjóðvegi 1 við Vindbelgjarfjall í Mývatnssveit. Annar bílanna hafnaði utan vegar og v...
Segir upp­töku evrunnar geta leitt til aukins at­vinnu­leysis - Vísir
📅 14.06.2026 👁️ 1
Segir upp­töku evrunnar geta leitt til aukins at­vinnu­leysis - Vísir
Jón Helgi Egilsson, doktor í hagfræði og fyrrverandi formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands, ræddi evrumálin við Kristján Kristjánsson í Sprengisan...
Friðar­við­ræður sagðar í uppnámi - Vísir
📅 14.06.2026 👁️ 1
Friðar­við­ræður sagðar í uppnámi - Vísir
Donald Trump Bandaríkjaforseti telur samt sem áður að samningur við Íran verði undirritaður „á næstu tveimur til þremur klukkustundum.“ Þetta sagði ha...
Inga Sæland tók sér veikindaleyfi eftir stormasama umræðu á Facebook
📅 14.06.2026 👁️ 2
Inga Sæland tók sér veikindaleyfi eftir stormasama umræðu á Facebook
Í lok maí tilkynnti Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og mennta- og barnamálaráðherra, að hún væri farin í tímabundið veikindaleyfi. Nokkrum dögum...
Trump: „Klúðrum þessu ekki!“
📅 14.06.2026 👁️ 1
Trump: „Klúðrum þessu ekki!“
Donald Trump Bandaríkjaforseti deilir á hernað Ísraels í Líbanon í færslu á samfélagsmiðli sínum í dag. Þar segir hann að árásin á úthverfi höfuðborga...
Ó­skiljan­legt að ráðu­neytið skoði bara stöðu náms­gagna í stærð­fræði - Vísir
📅 14.06.2026 👁️ 2
Ó­skiljan­legt að ráðu­neytið skoði bara stöðu náms­gagna í stærð­fræði - Vísir
Íris E. Gísladóttir, formaður Þróunarsjóðs námsgagna, segir nýlega skýrslu um stöðu námsgagna hafa hreyft við einhverju í ráðuneytinu en sjóðurinn gag...
Virðast ekki vilja tak­marka sig við tíu milljónir - Vísir
📅 14.06.2026 👁️ 1
Virðast ekki vilja tak­marka sig við tíu milljónir - Vísir
Samkvæmt útgönguspá kusu 55 prósent Svisslendinga gegn tillögunni en 45 með. Kosningunni lauk í hádeginu. Þjóðarflokkur Sviss, sem er hægri flokkur þa...
Nigel Farage vows to ban foreign nationals from social housing
📅 14.06.2026 👁️ 1
Nigel Farage vows to ban foreign nationals from social housing
Reform UK leader Nigel Farage has said his party would ban foreign nationals from living in social housing, with tenants required to find private acco...
Sinkholes suspend Gatwick trains from London and Brighton
📅 14.06.2026 👁️ 2
Sinkholes suspend Gatwick trains from London and Brighton
The discovery of sinkholes near a railway bridge in south London has caused the suspension of train services on Sunday to Gatwick Airport and Brighton...
Eigandi Exit segir lokunina ólögmæta
📅 14.06.2026 👁️ 1
Eigandi Exit segir lokunina ólögmæta
Ákvörðun lögreglu að loka skemmtistaðnum Exit aðfaranótt laugardags var óhófleg og ólögmæt að mati Anibal Hernandez, eiganda skemmtistaðarins.Aðgerðir...
Sigurgleðin fór úr böndunum
📅 14.06.2026 👁️ 1
Sigurgleðin fór úr böndunum
Talsverðar róstur voru í New York-borg í nótt eftir að körfuboltalið þar í borg, New York Knicks, vann langþráðan meistaratitil í NBA-deildinni. Þetta...
UK and Japan agree £18bn investment deal
📅 14.06.2026 👁️ 2
UK and Japan agree £18bn investment deal
The UK and Japan have agreed a multi-billion pound investment deal which UK Prime Minister Sir Keir Starmer said will build a "new era of co-operation...
VIDEO: Chaos on Tenerife flight forces emergency diversion to Portugal
📅 14.06.2026 👁️ 1
VIDEO: Chaos on Tenerife flight forces emergency diversion to Portugal
A Ryanair flight bound for Tenerife South Airport was forced to make an emergency diversion to Faro in Portugal after disorderly passengers sparked ch...
Voru komnir með sína eigin dyra­verði þegar lög­regluna bar að garði - Vísir
📅 14.06.2026 👁️ 1
Voru komnir með sína eigin dyra­verði þegar lög­regluna bar að garði - Vísir
Í skriflegri yfirlýsingu sem hann sendi frá sér með aðstoð vinar síns og fyrrum eiganda Exit, Sverris Einars Eiríkssonar, segist hann mótmæla ákvörðun...
Á­rekstur á Kársnesi - Vísir
📅 14.06.2026 👁️ 1
Á­rekstur á Kársnesi - Vísir
Varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu segir strætisvagn og fólksbifreið hafa lent saman. Engir farþegar hafi verið í strætisvagninum.  Dælubí...
Björn Jón skrifar: Kennum meiri sögu! - DV
📅 14.06.2026 👁️ 1
Björn Jón skrifar: Kennum meiri sögu! - DV
Við félagarnir skelltum okkur í Smárabíó síðastliðið mánudagskvöld til að sjá stórmyndina Tróju frá árinu 2004 í leikstjórn Þjóðverjans Wolfgang Peter...
Laus úr sjálf­heldu eftir um fimm tíma strand - Vísir
📅 14.06.2026 👁️ 1
Laus úr sjálf­heldu eftir um fimm tíma strand - Vísir
Sextán farþegar voru um borð þegar báturinn strandaði en þeir voru allir fluttir til lands með öðrum bát skömmu eftir að báturinn sigldi upp á grjót r...
'Boyfriend duties call,' Trudeau says after skipping Canada at World Cup to watch Katy Perry
📅 14.06.2026 👁️ 1
'Boyfriend duties call,' Trudeau says after skipping Canada at World Cup to watch Katy Perry
Former Canadian Prime Minister Justin Trudeau has responded to criticism for skipping his country's first World Cup match to attend a USA game, where ...
Valdakerfið sem neitar að vera í dagsljósinu – Um skipulagða hagsmunavernd og lýðræðislegt þrot á Íslandi
📅 14.06.2026 👁️ 2
Valdakerfið sem neitar að vera í dagsljósinu – Um skipulagða hagsmunavernd og lýðræðislegt þrot á Íslandi
Valdakerfið sem neitar að vera í dagsljósinu – Um skipulagða hagsmunavernd og lýðræðislegt þrot á Íslandi Fréttin14. júní 2026Aðsend grein, Innlent, S...
Queen's 2026: Emma Raducanu loses to Donna Vekic in women's final
📅 14.06.2026 👁️ 2
Queen's 2026: Emma Raducanu loses to Donna Vekic in women's final
Emma Raducanu misses the chance to win a first title since her 2021 US Open triumph as she is beaten in the Queen's final by Croatia's Donna Vekic.
Barcelona-Catalunya Grand Prix: Lewis Hamilton wins first GP for Ferrari as Kimi Antonelli retires
📅 14.06.2026 👁️ 1
Barcelona-Catalunya Grand Prix: Lewis Hamilton wins first GP for Ferrari as Kimi Antonelli retires
Lewis Hamilton takes his first victory for Ferrari in a compelling Barcelona-Catalunya Grand Prix as championship leader Kimi Antonelli retires.