Davíð Friðjónsson hefur starfað sem slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður í um 20 ár og reynt ýmislegt á þeim ferli. Hann reynir hins vegar yfirleitt að skilja starfið eftir þegar hann fer í frí með fjölskyldunni en það geta komið upp þær aðstæður að slíkt er ekki hægt. Það sem átti að verða þægilegur dagur á ströndinni fyrir Davíð og fjölskyldu breyttist í viðburðaríkan dag sem aldrei mun gleymast.
„Við vorum á strönd rétt hjá Torrevieja. Lágum á sólbekk og konan fer út í sjó. Skömmu síðar heyri ég bara öskur, hún og einhverjir fleiri höfðu þá fundið þessa stelpu,“ segir Davíð í viðtali við DV, en konan hans og aðrir ferðalangar fundu stúlku í sjónum sem ekki var með lífsmarki og drógu hana upp á land.
„Konan mín kallaði á mig á meðan þau voru að draga stúlkuna í land, mér virtist þetta vera stelpa á að giska 15 ára. Hún virtist meðvitundarlaus og ekki lífsmark með henni. Þetta leit ekki vel út,“ segir Davíð sem lét verkin tala og áralöng þjálfun hans í starfi kom sér vel.
„Ég hjálpaði þeim við að koma henni á land og svo hófst endurlífgun á henni. Hnoðið sem henni var veitt dugði til, svo ekki þurfti að blása í hana lífi, við gott og öflugt hnoð hreyfir maður oft loft með. Eftir smá tíma byrjaði vatn að ganga upp úr henni, þá lagði ég hana bara á hliðina og svo kannski fimm, tíu mínútum seinna fór hún svona að koma til lífsins, fór að anda sjálf og það kom litur í hana.“
DV spyr Davíð hvort hann hafi óttast að þetta myndi ekki takast.
„Ég hugsaði ekkert um það sko, en ég hef séð þessa hluti margoft áður, þegar ég leit fyrst á hana hugsaði ég aðeins með mér að þetta færi ekki vel en svo fór þetta á besta veg.“
Hann segir að sjúkralið hafi komið á vettvang um 15-20 mínútum síðar. Þá var kominn litur í vanga stúlkunnar og hún farin að sýna viðbragð við áreiti.
Segir að konan sín sé aðalhetjan
Davíð segist ekki átta sig á því hvaðan stúlkan og fjölskylda hennar eru en hann segir að fjölskyldan hafi ekki talað mikla ensku. Hann hefur ekki fengið fréttir af líðan stúlkunnar eftir að hún fór á sjúkrahúsið en miðað við hvernig ástandið á henni var þegar hann skildi við hana má vænta þar góðs.
Davíð segist aldrei hafa hikað við björgunarstarfið í dag og áralöng þjálfun við sambærilegar aðstæður skilaði sínu. Honum finnst hins vegar kona hans, Kolbrún Sif Marinósdóttir, vera mesta hetjan í þessu öllu.
„Ég gerði bara það sem ég kann en hún fann stúlkuna og dró hana að landi.“
Davíð og Kolbrún eru í fríi með yngstu dóttur sinni og vinkonu hennar. Fríið versnaði hreint ekki við þessa erfiðu uppákomu því allt fór vel.
„Það er alltaf góður dagur þegar maður bjargar mannslífi,“ segir hann og það eru góð lokaorð.