Til stendur að malbika framhjáhlaup og tengingar við Hringveg, Vesturlandsveg, framhjá Baulu og Borgarfjarðarbraut milli klukkan 9 og 16 í dag, miðvikudag, ef veður leyfir. Í tilkynningu frá Colas segir að umferð verði handstýrt á kafla þegar þess þarf og hægt verður á umferðarhraða.
Þá eru einnig ráðgerðar malbikunarframkvæmdir á Reykjanesbraut og Miklubraut næstu kvöld og nætur ef veður leyfir. Til stendur að malbika eftirfarandi:
- Malbikun á Reykjanesbraut í norðurátt á milli Vífilsstaðavegar og Breiðholtsbrautar. Framkvæmdirnar munu standa frá 20:00 til 07:00 aðfaranótt 27. ágúst. Reykjanesbraut á milli Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar verður lokuð í norðurátt meðan á framkvæmdum stendur.
- Malbikun á Reykjanesbraut í suðurátt á milli Arnarnesvegar og Vífilsstaðavegar. Framkvæmdirnar munu standa frá 20:00 til 07:00 aðfaranótt 27. ágúst. Þrengt verður í eina akrein fram hjá vinnusvæðinu.
- Fræsing á Miklubraut í austurátt. Framkvæmdirnar munu standa frá 20:00 til 23:30 miðvikudaginn 26. ágúst. Þrengt verður í eina akrein fram hjá vinnusvæðinu.
- Fræsing á Miklubraut í vesturátt. Framkvæmdirnar munu standa frá 22:00 til 03:00 aðfaranótt 27. ágúst. Miklubraut verður lokað meðan á framkvæmdum stendur og umferðinni beint niður slaufu á Sæbraut/Reykjanesbraut.
Í tilkynningu frá Colas eru vegfarendur vinsamlegast beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir en búast má við einhverjum smá umferðatöfum vegna framkvæmdanna. Vegfarendur eru jafnframt beðnir að sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng, þar sem menn og tæki eru við vinnu nálægt akstursbrautum.