Vopnahlé milli Írans og Bandaríkjanna er í bráðri hættu samkvæmt Bandaríkjaforseta og lítið sem bendir til að samningar um frið náist í bráð.
Í gær bárust svör Íransstjórnar við tillögum Bandaríkjanna að samkomulagi. Þeirra hafði verið beðið í nokkra daga en Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hafnaði þeim alfarið.
Ætlar að afnema alríkisskatt á eldsneyti
Trump tilkynnti síðdegis að hann ætli að koma til móts við hækkun á eldsneytisverði með því að afnema alríkisskatt. Það myndi skila sér í um fjögurra prósenta lækkun til neytenda.
Írönsk stjórnvöld krefjast þess að Bandaríkin felli niður hafnbann og að öllum átökum linni, ekki síst milli Ísrael og Hezbollah í Líbanon, en staðan í Líbanon versnar dag frá degi.
Þá vilja írönsk stjórnvöld ekki opna fyrir umferð um Hormússund nema búið sé að semja um stríðslok, á meðan Trump hefur krafist þess að Íranar opni sundið fyrst - síðan verði samið um frið.
Í upphafi töldu Bandaríkin að þetta stríð myndi ekki vara svo lengi en hér að ofan má sjá samantekt á því sem Bandaríkjaforseti hefur sagt um stríðið frá því það hófst með árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran 28. febrúar.
Bandaríkjaforseti hefur þegar fundað með þjóðaröryggisráði sínu, væntanlega um næstu skref. Forseti þingsins í Íran greindi frá því á X að Íranar væru reiðubúnir að bregðast við kæmi til átaka að nýju.
Á meðan heldur olíuverð áfram að hækka, enda litlar horfur á að opnað verði fyrir umferð um Hormússund á næstunni. Á friðartímum fer um fimmtungur allrar olíu þar um.