Breska ríkisstjórnin hyggst verja 8,4 milljörðum punda, jafnvirði tæplega 1.400 milljarða íslenskra króna, í næsta áfanga Dreadnought-áætlunarinnar um smíði nýrra kjarnorkukafbáta. Samkvæmt bresku ríkisstjórninni mun fjárfestingin styðja við um 47 þúsund störf og starfsnám á næstu árum.
Samkvæmt frétt AFP kemur fram í tilkynningu frá Downing Street, embætti breska forsætisráðherrans, að 5,9 milljarðar punda fari til varnarmálafyrirtækisins BAE Systems sem smíðar fjóra Dreadnought-kafbáta. Um er að ræða nýjan flokk kjarnorkukafbáta sem eiga að leysa eldri Vanguard-kafbáta af hólmi.
Segir fjárfestinguna skapa tækifæri
Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, segir að verkefnið muni skapa tækifæri fyrir ungt fólk og styðja við atvinnu á fjölmörgum svæðum í Bretlandi. Hann hefur lagt áherslu á að draga úr auknu atvinnuleysi meðal ungs fólks frá því hann tók við embætti.
Fjárfestingin á meðal annars að tryggja að fyrsti kafbáturinn, HMS Dreadnought, geti hafið sjóprófanir áður en hann tekur til starfa hjá breska sjóhernum snemma á næsta áratug. Einnig verður unnið áfram að smíði hinna þriggja kafbátanna.
Samkvæmt bresku ríkisstjórninni er fjárfestingin hluti af áætlun um að verja meira en 63 milljörðum punda, um 10.500 milljörðum íslenskra króna, í kjarnorkuvarnir landsins á næstu fjórum árum, þar á meðal Dreadnought-áætlunina og nýja árásarkafbáta sem þróaðir eru í samstarfi við Ástralíu og Bandaríkin innan AUKUS-varnarsamstarfsins.