Eftir umfangsmikla úttekt á vegum breskra stjórnvalda á löggæslu í landinu hafa verið lagðar til róttækar breytingar á starfsháttum lögreglunnar í Englandi og Wales. Þar er lögreglunni meðal annars gert að hætta að taka þátt í svokölluðum menningarstríðum og einbeita sér alfarið að því að koma í veg fyrir glæpi, rannsaka þá og sækja brotamenn til saka.
Segja lögregluna hafa tekið afstöðu
Í skýrslunni kemur fram að lögreglan verði að vera staðföst í því að taka ekki afstöðu í pólitískum eða menningarlegum deilum. Þar er jafnframt gagnrýnt að lögregluyfirvöld hafi á undanförnum árum veitt ákveðnum hópum sérstaka meðferð og forgang, sem hafi grafið undan trausti almennings.
Skýrslan var unnin að frumkvæði College of Policing með stuðningi innanríkisráðuneytisins í kjölfar fjölda hneykslismála innan bresku lögreglunnar.
„Ekkert pláss fyrir woke“
Fyrrverandi innanríkisráðherrann David Blunkett lávarður, sem stýrði úttektinni ásamt öðrum fyrrverandi ráðherra Nick Herbert lávarði, sagði að lögreglan ætti ekki að taka þátt í menningar- eða pólitískum átökum.
„Það er ekkert pláss fyrir menningarstríð eða woke mál í löggæslu. Hlutverk lögreglunnar er að skila árangri, ekki taka afstöðu,“ sagði Blunkett.
Hann rifjaði einnig upp að hann hefði gagnrýnt það þegar lögreglumenn tóku þátt í pólitískum táknrænum aðgerðum, meðal annars með því að krjúpa á meðan mótmæli stóðu yfir í kórónuveirufaraldrinum eða Black Lives Matter hreyfingunni.
Harðorð gagnrýni á stjórnendur
Skýrslan er jafnframt afar gagnrýnin á stjórn lögreglunnar. Þar kemur fram að ekkert lögregluumdæmi í Englandi eða Wales hafi fengið hæstu einkunn fyrir stjórnun og forystu.
Frá árinu 2018 hafa 47 rannsóknir beinst að háttsettum lögreglustjórnendum vegna ásakana um frændhygli, spillingu, misbeitingu valds og kynferðislegt misferli. Átta núverandi eða fyrrverandi lögreglustjórar eru enn til rannsóknar eða bíða refsingar.
Aðeins 13 prósent lögregluþjóna og 17 prósent varðstjóra töldu sig starfa innan stofnunar sem þeir telja að sé vel stjórnað samkvæmt könnun sem vitnað er til í skýrslunni.
Vill nýja siðferðislega endurreisn
Í skýrslunni er lagt til að komið verði á fót sérstakri leiðtogaakademíu að fyrirmynd Sandhurst herforingjaskólans, samræmdri þjálfun fyrir alla nýliða og nýrri starfsgráðu fyrir reynda lögreglumenn.
Umræðan um svokallaða „tveggja þrepa löggæslu“ hefur verið áberandi í Bretlandi undanfarna mánuði, meðal annars í kjölfar máls Henry Nowak sem vakti mikla athygli. Skýrslan leggur áherslu á að bakgrunnur, uppruni eða sjálfsmynd hvorki brotaþola né grunaðra eigi aldrei að hafa áhrif á hvernig lögreglan kemur fram við fólk, heldur eigi allir að njóta sömu virðingar og sömu meðferðar fyrir lögum.