Ríflega tvö hundruð manns eru í vinnu á framkvæmdasvæði Landsvirkjunar í Vaðölduveri, fyrir ofan Búrfellsvirkjun. Vaðölduver er fyrsta vindmylluver landsins.
Framkvæmdasvæðið er 17 ferkílómetrar og mörg handtök sem þarf við að reisa hverja vindmyllu. Búið er að reisa fjórar vindmyllur, af 28, og til stendur að setja fyrstu vindmylluna í gang í lok ágúst. Ráðgert er að vindmyllurnar 28 verði komnar í fulla framleiðslu fyrir lok 2027.
Landsvirkjun með samning við Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Einar Tryggvason, sjúkraflutningamaður, sinnir bráðavakt á vinnusvæðinu. Hann vinnur á vöktum en Landsvirkjun gerði samning við Heilbrigðisstofnun Suðurlands um mönnun á svæðinu.
Hann segir engin alvarleg meiðsli hafa komið upp. „Þetta eru bara minniháttar hrufl og skurðir og þess háttar en ekkert alvarlegt, ekkert alvarlegt. Hér er mikill metnaður lagður í að búa til slysalausan vinnustað og það hefur tekist bærilega.“
Elín Hallgrímsdóttir, staðarverkfræðingur Landsvirkjunar, segir það oft verða hlutverk bráðavaktarinnar að sinna sáluhjálp.
„Það er alveg erfitt að vera svona í burtu frá fjölskyldu og öllum, það leggst misvel í fólk.“
Meirihluti starfsfólksins býr í vinnubúðum sem voru reistar á framkvæmdasvæðinu. Þá er kokkur í fullu starfi við að elda ofan í mannskapinn og á svæðinu er matsalur þar sem starfsmennirnir snæða saman morgun-, hádegis- og kvöldverð.
Búið að reisa fjórar vindmyllur
Framkvæmdir hófust í maí og nú hafa fjórar vindmyllur, af 28, risið. Búið er að steypa meirihluta af undirstöðum, þar sem millimetrar skipta máli.
Vindmyllurnar eru um 150 metra háar þegar spaði er í hæstu stöðu. Turninn sjálfur er um 76 metrar á hæð og hver spaði er rétt um 68 metra langur.
Verkefni bráðavaktarinnar hafa jafnvel teygt sig í sveitina í kring.
„Já við förum hiklaust, við erum bara á útkallslista hjá Neyðarlínunni eins og sjúkrabílarnir hjá starfsfélögunum. Og við förum í útköll bara ef það er talið að við séum á undan eða getum verið til aðstoðar. Hvort sem það eru sveitungar eða ferðamenn eða hvað það nú er,“ segir Einar.