Blóm að verða uppseld í Osló — ástand konungs enn alvarlegt

Blóm að verða uppseld í Osló — ástand konungs enn alvarlegt

Blóm að verða uppseld í Osló — ástand konungs enn alvarlegt

Við ljúkum þessari fréttavakt með viðtalinu við Valla sport, sem ykkur var lofað áðan.

„Það er rosalegur dofi í fólki og fólk er svona í biðstöðu. Það veit ekki hvernig því á að líða – það sækist eftir samveru með fjölskyldu. Þetta er svolítið sérkennilegt fyrir Íslending að skilja, hvernig þessar tilfinningar eru, vegna þess að við höfum enga manneskju sem við tengjumst við á þennan hátt,“ segir hann meðal annars.

Ástand Haraldar Noregskonungs er enn alvarlegt, síðasta tilkynning frá norsku hirðinni barst um þrjú leytið og þar kom fram að líðan konungs væri óbreytt.

Haraldur var lagður inn á spítala í Ósló 17. ágúst vegna blóðsýkingar og hefur dvalið þar síðan. Blómvöndum hefur verið staflað upp við konungshöllina í Osló. Fjöldi fólks hefur gert sér ferð þangað með blóm, kerti og kort fyrir konunginn.

Ólöf Ragnarsdóttir þakkar ykkur samfylgdina í dag.

Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, var í viðtali hjá TV 2 í Noregi. Hann segir að heil þjóð vaki nú yfir konungi sínum.

„Alvarlegt heilsufarsástand konungsins hefur mikil áhrif á mig. Fjölskylda hans er hjá honum. Ég held það sé óhætt að segja að í dag hafi heil þjóð staðið við hlið hans og vakið yfir honum,“ segir Støre.

Hann segir fullkomlega eðlilegt að ráðamenn hafi hætt við fyrirhugaða fundi og aðrar skyldur. Støre segir viðbrögð Norðmanna hafa hreyft við sér.

„Og ég held að þetta sé einfaldlega enn ein staðfesting á þeirri sterku stöðu sem Haraldur konungur hefur hjá norsku þjóðinni.“

Viðtalið í heild má sjá í myndskeiðinu hér að ofan, fyrir þau sem skilja norsku að njóta.

Nú er Sonja drottning, eiginkona Haraldar, farin frá spítalanum. Hún hefur verið þar í allan dag.

Hákon krónprins og Mette-Marit krónprinsessa eru farin aftur að heiman. Þau fóru heim frá spítalanum fyrr í dag að heimili sínu í Skaugum.

NRK greinir frá þessu.

Haraldur konungur vakti heimsathygli með ræðu sem hann hélt fyrir tíu árum þar sem hann talaði hástöfum meðal annars fyrir réttindum hinsegin fólks og innflytjenda.

Tilvitnun úr þeirru ræðu hefur verið rifjuð upp víða og greinilega búið að gera plaggat út frá henni.

„Nordmenn er jenter som er glad i jenter, gutter som er glad i gutter, og jenter og gutter som er glad i hverandre,“ stendur á plaggatinu.

Þetta mætti þýða sem: „Norðmenn eru stelpur sem elska stelpur, strákar sem elska stráka og stelpur og strákar sem elska hvort annað.“

Valgeir Magnússon, auglýsingamaður og stjórnarformaður Pipar\TBWA, starfar í Osló. Hann er líklega betur þekktur sem Valli sport og er með skrifstofu nærri norsku konungshöllinni.

„Það eru ótrúlega miklar tilfinningar sem að Norðmenn bera til kóngsins og það er búið að vera stöðugur straumur að höllinni, fólk með blóm. Og blóm eru að verða uppseld og held ég að séu orðin uppseld í öllum blómabúðum í Ósló þannig að fólk er að útvega sér blóm með að klippa blóm úr garðinum sínum.“

Guðmundur Atli Hlynsson fréttamaður ræddi við Valgeir og við birtum viðtalið á ruv.is von bráðar.

Hér er nýtt myndskeið frá konungshöllinni í Osló. Blómvöndum er staflað upp og inn á milli leynast einnig kort til konungsins og kerti.

Ungar konur röðuðu kertum þannig að þau mynda hjarta.

Norska ríkisútvarpið hefur ákveðið að fella niður umræðuþáttinn Debatten. Hann er á dagskrá vikulega.

Í staðinn verður áfram útsending um líðan Haraldar konungs.

Norska hirðin hefur gefið út nýja tilkynningu. Í henni segir að líðan Haraldar konungs sé óbreytt.

Í morgun var tilkynnt að heilsu hans hafi hrakað og að ástand hans sé mjög alvarlegt. Konungurinn hefur verið á Ríkissjúkrahúsinu í Ósló undanfarna tíu daga vegna blóðsýkingar.

Glöggir lesendur sjá kannski að það er komið streymi hér að ofan. Þetta er beint streymi frá konungshöllinni í Osló þar sem fólk hefur safnast saman og mörg lagt niður blómvendi.

Það virðist stöðugt streymi þangað af fólki.

Norska ríkisútvarpið NRK er með útsendingu á NRK1 og á vefnum, þar er ekki fjallað um neitt annað en Harald konung.

Rætt er við fólk víða um land og mörg eru sammála um að hann sé bæði traustur og alþýðlegur.

Hákon krónprins og Mette-Marit krónprinsessa eru farin heim af spítalanum. Börn þeirra Ingiríður Alexandra og Sverrir Magnús einnig.

NRK greinir frá þessu en vitnar í Verdens Gang.

Masud Gharahkhani, forseti Stórþingsins, er lentur í Noregi. Hann var í heimsókn hér á Íslandi en fór fyrr heim. Marius Høiby, stjúpsonur Hákons krónprins, er farinn af spítalanum, líklega heim til sín því þar á hann að vera með ökklaband.

Høiby var í sumar dæmdur til fjögurra ára fangelsisvistar fyrir tvær nauðganir, ofbeldi í nánu sambandi, líkamsárás og fjölmörg brot á nálgunarbanni auk annarra brota.

Ástríður prinsessa og eldri systir konungs er ekki lengur á sjúkrahúsinu. Hún fór þaðan um 12:30 að íslenskum tíma. NRK greinir frá þessu.

Fólk streymir enn að konungshöllinni í Osló og sífellt bætist í blómahafið þar. Hér er myndskeið frá höllinni.

  • Haraldur konungur er þungt haldinn og norska hirðin segir stöðuna alvarlega.
  • Norska hirðin notar alla jafna yfirvegað orðfæri í tilkynningum en svo er ekki nú.
  • Konungsfjölskyldan hefur safnast saman á Ríkissjúkrahúsinu í Ósló.
  • „Við verðum að búa okkur undir það versta,“ segir Bjørn Tore Gjertsen sem er yfirlæknir blóðsjúkdómadeildar á öðrum spítala í Noregi.
  • Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, hætti við fyrirhugaða heimsókn til Þýskalands.
  • Fólk hefur safnast saman við konungshöllina í Osló og lagt þar blómvendi.

Fólk er tekið að safnast saman við konungshöllina og leggja þar blómvendi. Ein þeirra er Gørild Grande sem NRK ræddi við. Hún komst við þegar hún talaði um Harald konung.

„Mér datt í hug að ég gæti sýnt góðum konungi virðingu og kærleika,“ segir Grande.

Fréttamaður spyr hana hver Haraldur konungur sé fyrir henni. „Hann er maður sem sameinar landið, sameinar þjóðina. Hann tekur tillit til allra og sýnir öllum kærleika. Hvort sem þú ert strákur sem elskar strák eða stelpa sem elskar stelpu. Það segir mikið um þann mann sem hann hefur að geyma.“

Þess má geta að Haraldur konungur vakti heimsathygli með ræðu sem hann hélt fyrir tíu árum þar sem hann talaði hástöfum meðal annars fyrir réttindum hinsegin fólks og innflytjenda.

Hákon krónprins hefur ekki verið mikið í sviðsljósinu upp á síðkastið heldur frekar eiginkona hans Mette-Marit krónprinsessa og stjúpsonur Marius Borg Høiby.

Sjálfur er Hákon vinsæll í Noregi. Þótt vinsældir konungsfjölskyldunnar í heild sinni hafi farið dvínandi þá fær Hákon persónulega góða einkunn frá þjóðinni, yfirleitt um 9 af 10 mögulegum.

Hákon er fæddur 20. júlí 1973 og er sonur Haraldar konungs og Sonju drottningar. Hann er tveimur árum yngri en Marta Lovísa prinsessa en hann er ríkisarfinn vegna þess að lögum um ríkiserfðir var ekki breytt fyrr en árið 1990. Aðeins eftir 1990 gátu konur erft krúnuna jafnt sem karlar. Hákon var fæddur krónprins og lögin ekki afturvirk.

Frá unga aldri hefur Hákon haft áhuga á vatnaíþróttum, útiveru og tónlist. Hann hefur reynt að samþætta útivist við störf sín og hann fór til að mynda í göngu að gosstöðvunum við Fagradalsfjall ásamt Guðna Th. Jóhannessyni forseta þegar hann kom til Íslands árið 2022.

Árið 2001 giftist hann Mette-Marit Tjessem Høiby sem þá varð krónprinsessa Noregs. Mette-Marit var einstæð móðir af alþýðuættum og ekki voru allir Norðmenn sáttir við ráðahaginn. Þau eiga tvö börn saman, Ingiríði Alexöndru prinsessu sem er fædd 2004 og Sverri Magnús prins sem er fæddur 2005.

Ákveðið ferli fer í gang þegar konungur deyr í Noregi, til dæmis er almenningi og fjölmiðlum ekki tilkynnt andlátið umsvifalaust.

Áður en það er gert skal öll nánasta fjölskylda látin vita. Forvígismenn ríkisstjórnar, forsætisráðherra og lykilstarfsmenn hirðarinnar eru upplýstir á undan almenningi og þá gildir einu á hvaða tíma sólarhrings konungur andast.

Formlega séð verður krónprinsinn konungur á sama augnabliki og konungur andast. Noregur má ekki verða án þjóðhöfðingja.

Hann tilkynnir ríkisstjórninni andlát föður síns formlega og konungsnafnið á ríkisráðsfundi sem halda þarf umsvifalaust.

Hefðbundin krýning var afnumin í Noregi snemma á 20. öld en nýr konungur og drottning verða blessuð í Niðarósdómkirkju í Þrándheimi nokkrum mánuðum eftir valdatökuna.

Norskir miðlar fylgjast grannt með öllu sem gerist. Hér er myndskeið af konungsfjölskyldunni mæta á spítalann í morgun.

Meira af Jonasi Gahr Støre forsætisráðherra Noregs. Hann hefur hætt við ferð til Þýskalands í dag. Þar átti hann að mæta á fundi og vinnukvöldverð með Friedrich Merz kanslara Þýskalands.

Þá ætlar Masud Gharahkhani, forseti norska þingsins, að fara fyrr heim frá Íslandi. Hann kom hingað í gær til þess að taka þátt í fundi forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja og átti að fara heim á morgun. Nú reynir hann að komast heim sem allra fyrst.

Ólöf Ragnarsdóttir er mætt á vaktina og segir ykkur helstu tíðindi frá Noregi fram eftir degi.

Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, sendi Haraldi konungi kveðju á sjúkrahúsið í dag.

Hann sagði það hafa djúp áhrif á sig að heilsu konungs hefði hrakað. Hann sagðist senda konungi og fjölskyldu hans hlýjar kveðjur fyrir sína hönd og þjóðarinnar. Støre sagðist jafnframt fullviss um að konungur nyti góðrar meðferðar og umhyggju á ríkisspítalanum.

Með þessum tíðindum kveður Brynjólfur Þór Guðmundsson og Ólöf Ragnarsdóttir tekur við stjórninni á þessari fréttavakt.

Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit krónprinsessu, er mættur á ríkissjúkrahúsið í Ósló þar sem Haraldur konungur liggur þungt haldinn. Vårt land greindi frá komu hans og birti mynd.

Høiby var í sumar dæmdur til fjögurra ára fangelsisvistar fyrir tvær nauðganir, ofbeldi í nánu sambandi, líkamsárás og fjölmörg brot á nálgunarbanni auk annarra brota.

Konungsfjölskyldan hefur safnast saman á Ríkissjúkrahúsinu í Ósló vegna versnandi heilsu Haraldar konungs.

Bjørn Tore Gjertsen er yfirlæknir blóðsjúkdómadeildar við Haukeland-háskólasjúkrahúsið. Norska ríkisútvarpið NRK fékk hann til að leggja mat á ástand Haraldar út frá þeim upplýsingum sem hafa verið gefnar út.

„Ef við lítum til aldurs hans og þess sem við vitum um veikindasögu hans þá held ég að við verðum að horfast í augu við að þetta er mjög alvarlegt og að við verðum að búa okkur undir það versta.“

Gjertsen segir að hár aldur konungs hjálpi ekki til því hann setji því hömlur hvað sé hægt að gera til að bæta heilsu hans. Yfirlæknirinn sagði þó að konungur væri á besta mögulega stað, ríkisspítalinn væri með mjög góða deild á heimsmælikvarða til að meðhöndla blóðsjúkdóma.

Haraldur konungur er fimmti norski konungurinn sem ber það nafn. Hann fæddist 21. febrúar 1937, sonur Ólafs krónprins og Mörthu krónprinsessu.

Haraldur fór í útlegð ásamt fjölskyldu sinni þegar Þjóðverjar hernumu Noreg 1940 og ólst upp hluta ævinnar í Svíþjóð og Bandaríkjunum.

Haraldur keppti í siglingum á þrennum Ólympíuleikum, frá 1964 til 1972.

Haraldur varð krónprins 1957 þegar Hákon afi hans lést og Ólafur faðir hans varð konungur. Haraldur varð konungur 17. janúar 1991, fyrir 35 árum. Haraldur varð fyrsti konungur Noregs frá 1380 sem fæddist sjálfur í Noregi.

Haraldur giftist Sonju Haraldsen 1968 og eiga þau tvö börn, Hákon krónprins og Mörthu Lovísu prinsessu. Ólafur konungur, faðir Haraldar, var í fyrstu tregur til að samþykkja hjónabandið því Sonja er ekki af konungsættum.

Norska ríkisútvarpið NRK leitaði til Ole-Jørgen Schulsrud-Hansen, sérfræðings í málefnum norsku konungsfjölskyldunnar, og fékk hann til að rýna í tilkynningu hirðarinnar um heilsu konungs.

Schulsrud-Hansen sagði að alla jafna notaðist hirðin við yfirvegað orðfæri í tilkynningum sínum. Nú vekti athygli að hún notaði afdráttarlaus og sterk orð í tilkynningu og segði ástand konungs mjög alvarlegt.

Hann segir að þetta valdi sér áhyggjum því fólk hafi vonast til að fyrri orð um að ástand konungs væri stöðugt væru enn í fullu gildi. Nú virðist það ekki lengur eiga við.

Haraldur konungur hefur lengi glímt við heilsubrest. Í febrúar var hann lagður inn á sjúkrahús meðan hann var í fríi á Tenerife og síðan fluttur heim til Noregs.

Haraldur var lagður inn á spítala í Ósló 17. ágúst vegna blóðsýkingar og hefur dvalið þar síðan.

Hákon krónprins, Mette-Marit krónprinsessa, Sonja drottning og Sverrir Magnús prins eru komin á sjúkrahúsin til að vera hjá konuningum.

Góðan dag og velkomin í fréttavakt um heilsufar Haraldar Noregskonungs.

Norska hirðin tilkynnti í morgun að heilsu konungs hefði hrakað enn og að ástand hans væri mjög alvarlegt. Krónprinsinn og drottningin hafa aflýst öllum þeim viðburðum sem þau áttu að taka þátt í.

Ég heiti Brynjólfur Þór Guðmundsson og fylgi ykkur inn í daginn.

#blóm #osló #uppseld #verða #ástand


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-27-blom-ad-verda-uppseld-i-oslo-astand-konungs-enn-alvarlegt-484969

📰 Aðrar fréttir

Biðla til íbúa Kherson um að yfirgefa borgina
📅 28.08.2026 👁️ 0
Biðla til íbúa Kherson um að yfirgefa borgina
Yfirvöld í borginni Kherson í Úkraínu hafa beðið íbúa að yfirgefa borgina. Héraðsstjórinn Oleksandr Prokudin sagði í færslu á Telegram að hann biðlaði...
Upp­sagnirnar hafi líka á­hrif á þá sem eftir verða - Vísir
📅 27.08.2026 👁️ 1
Upp­sagnirnar hafi líka á­hrif á þá sem eftir verða - Vísir
Tæplega níutíu starfsmönnum var sagt upp hjá Reykjavíkurborg í vikunni vegna skipulagsbreytinga. Uppsagnirnar náðu til velferðar-, frístunda- og skóla...
Bylgjan heiðraði goð­sögnina Þor­geir - Vísir
📅 27.08.2026 👁️ 1
Bylgjan heiðraði goð­sögnina Þor­geir - Vísir
Þorgeir hóf útvarpsferil sinn á Rás 2 þegar stöðin tók til starfa árið 1983 og var ráðinn forstöðumaður. Hann kom svo við á Stjörnunni áður en hann fl...
Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðug­leika“ - Vísir
📅 27.08.2026 👁️ 1
Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðug­leika“ - Vísir
Eins og þjóðinni allri ætti að vera kunnugt ganga Íslendingar að kjörborðinu 29. ágúst til að greiða atkvæði um það hvort Ísland eigi að hefja á ný að...
Greens call for temporary ban on new data centres
📅 27.08.2026 👁️ 1
Greens call for temporary ban on new data centres
Zack Polanski wants stricter rules to limit the use of water and energy by data centres for AI.
„Þetta er ekki al­veg ó­vænt“ - Vísir
📅 27.08.2026 👁️ 1
„Þetta er ekki al­veg ó­vænt“ - Vísir
Hagstofan birti í morgun niðurstöður verðmælinga ágústmánaðar og reyndist verðbólgan vera 5,6 prósent. Með því eru forsendur stöðugleikasamninganna, s...
GTA 6 extended look: What we know after Netflix preview
📅 27.08.2026 👁️ 1
GTA 6 extended look: What we know after Netflix preview
The official look at the blockbuster video game leaves fans and critics impressed.
Segir Katrínu hafa gengið peningaöflunum á hönd - Sitji í stjórn félags sem græði á verðtryggingunni
📅 27.08.2026 👁️ 1
Segir Katrínu hafa gengið peningaöflunum á hönd - Sitji í stjórn félags sem græði á verðtryggingunni
Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra hefur lítið látið fyrir sér fara í umræðunni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna á laugardag þar til í dag....
Þegar nei-ið náði yfirhöndinni
📅 27.08.2026 👁️ 1
Þegar nei-ið náði yfirhöndinni
Þegar nei-ið náði yfirhöndinni Hall­dór Benja­mín Þor­bergs­son fór af árs­hluta­fundi Heima yf­ir á svið­ið á Aust­ur­velli, þar sem hann gat fagn­að...
Rape and sex offence specialists on all police forces by 2027, PM says
📅 27.08.2026 👁️ 1
Rape and sex offence specialists on all police forces by 2027, PM says
The plans for forces in England and Wales had been scheduled to be rolled out by summer 2029, but have been brought forward.
Tekist á um orsakir hækkandi verðbólgu
📅 27.08.2026 👁️ 1
Tekist á um orsakir hækkandi verðbólgu
Verðbólga mældist 5,6% í ágúst og hefur ekki verið hærri í tvö ár. Forseti Alþýðusambands Íslands segir mögulegt að kjarasamningar haldi ef fyrirtækin...
Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verð­mæti - Vísir
📅 27.08.2026 👁️ 1
Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verð­mæti - Vísir
Í kvöldfréttum Sýnar mátti sjá Sigurð VE, skip Ísfélagsins, koma inn til Þórshafnar eftir þrjátíu tíma siglingu úr Síldarsmugunni. Aflinn fékkst norðv...
Ný Gallup könnun: Svarhlutfallið svo lágt að erfitt er að draga ályktanir
📅 27.08.2026 👁️ 1
Ný Gallup könnun: Svarhlutfallið svo lágt að erfitt er að draga ályktanir
Í nýjum þjóðarpúlsi Gallups, sem RÚV birti í kvöld, segist naumur meirihluti þeirra sem svara ætla að segja nei við framhaldi aðildarviðræðna, sem er ...
Clean-up of illegal Kidlington waste supersite costs £6m
📅 27.08.2026 👁️ 1
Clean-up of illegal Kidlington waste supersite costs £6m
The bill for clearing the dump in Oxfordshire has been covered by taxpayers.
ESB geti hvorki tekið yfir orku­auð­lindir né skipað Ís­landi að leggja sæ­streng - Vísir
📅 27.08.2026 👁️ 1
ESB geti hvorki tekið yfir orku­auð­lindir né skipað Ís­landi að leggja sæ­streng - Vísir
Forsætisráðuneytið fékk þrjá lagaprófessora við Háskólann í Reykjavík, þau Gunnar Þór Pétursson, Hafstein Dan Kristjánsson og Margréti Einarsdóttur, t...
Marg­menni fyrir utan höllina og blóm­vendir upp­seldir - Vísir
📅 27.08.2026 👁️ 1
Marg­menni fyrir utan höllina og blóm­vendir upp­seldir - Vísir
Valgeir Magnússon hefur verið með annan fótinn í Ósló síðustu fimm árin og segir viðbrögð Norðmanna við fregnum af heilsu Haraldar koma sér á óvart.  ...
Sports Direct's Ashley attacks Burnham over 'populist' High Street revival plans
📅 27.08.2026 👁️ 1
Sports Direct's Ashley attacks Burnham over 'populist' High Street revival plans
In a letter, the entrepreneur accuses the prime minister of "jumping on 'everyday fixes' or bandwagons" with his latest cost of living and retail poli...
Hvað veistu um… Dolly Parton? - Vísir
📅 27.08.2026 👁️ 1
Hvað veistu um… Dolly Parton? - Vísir
Dolly Parton var þó miklu meira en tónlistarsnillingur. Hún var þekkt fyrir hlýju sína, mikla kímnigáfu og einstakan húmor og hafði þann góða eiginlei...
Spyrja hver stjórni Reykjanesbæ - Vilhjálmur sé að verða alvaldur
📅 27.08.2026 👁️ 1
Spyrja hver stjórni Reykjanesbæ - Vilhjálmur sé að verða alvaldur
Samstarf meiri- og minnihluta í bæjarstjórn Reykjanesbæjar virðist ekki ganga neitt sérstaklega vel. Í fjölda fundargerða, síðan að meirihluti Sjálfst...
Núdistar og „textíl fólk“ í stríði í Andalúsíu – Vilja ekki að börnin sjái nakta kroppa
📅 27.08.2026 👁️ 1
Núdistar og „textíl fólk“ í stríði í Andalúsíu – Vilja ekki að börnin sjái nakta kroppa
Núdistar sem sækja nektarströndina Cantarriján í Andalúsíu á Spáni tókust í hendur í mótmælastöðu fyrir skemmstu. Eru þeir á móti því að klætt fólk fá...
Mættu í skólann og beittu nemanda of­beldi - Vísir
📅 27.08.2026 👁️ 1
Mættu í skólann og beittu nemanda of­beldi - Vísir
„Við viljum upplýsa ykkur um að í dag kom upp alvarlegt atvik í unglingadeild þar sem þrír einstaklingar, sem ekki tilheyra nemendahópi Ölduselsskóla,...
Jakob Smári út­nefndur bæjarlistamaður Mos­fells­bæjar - Vísir
📅 27.08.2026 👁️ 1
Jakob Smári út­nefndur bæjarlistamaður Mos­fells­bæjar - Vísir
Bæjarhátíðin Í túninu heima var sett í Mosfellsbæ í dag og var Jakob Smári útnefndur á setningarhátíðinni. Menningar-, íþrótta- og lýðheilsunefnd Mosf...
Forseti El Salvador deilir færslu Íslendings um landið
📅 27.08.2026 👁️ 1
Forseti El Salvador deilir færslu Íslendings um landið
Nayib Bukele, forseti El Salvador, deildi á X færslu Íslendingsins Ara Vestmars Ýmissonar þar sem hann hrósaði forsetanum og þeirri uppbyggingu sem nú...
Tekist á um já eða nei – umræður í beinni
📅 27.08.2026 👁️ 1
Tekist á um já eða nei – umræður í beinni
Kristrún segir að kjósendur eigi ekki að hafa áhyggjur af því að allt púður ríkisstjórnarinnar verði sett í aðildarviðræður en að önnur málefni mæti a...
Tekist á um já eða nei fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðlsu
📅 27.08.2026 👁️ 1
Tekist á um já eða nei fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðlsu
Við þökkum ykkur fyrir samfylgdina í kvöld þar sem við fylgdumst með umræðum í beinni útsendingu um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem þjóðin velur...
Já eða Nei: Báðar hliðar gera grein fyrir máli sínu
📅 27.08.2026 👁️ 1
Já eða Nei: Báðar hliðar gera grein fyrir máli sínu
Við þökkum ykkur fyrir samfylgdina í kvöld þar sem við fylgdumst með umræðum í beinni útsendingu um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem þjóðin velur...
„Fólk er reitt“
📅 27.08.2026 👁️ 1
„Fólk er reitt“
„Ég ætla að útskýra fyrir ykkur hvers vegna við höfnuðum vondum samningi og hvað gerist næst,“ sagði Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, á laugardag...
Sam­ræmdar reglur um símafrí settar - Vísir
📅 27.08.2026 👁️ 1
Sam­ræmdar reglur um símafrí settar - Vísir
Í tilkynningu þess efnis á vef Stjórnarráðsins segir að setning reglugerðarinnar sé næsta skref eftir að Alþingi samþykkti breytingu á lögum um grunns...
Ný könnun: Naumur meirihluti ætlar að segja nei - Algjör viðsnúningur meðal ungs fólks
📅 27.08.2026 👁️ 1
Ný könnun: Naumur meirihluti ætlar að segja nei - Algjör viðsnúningur meðal ungs fólks
Samkvæmt nýjasta þjóðarpúlsi Gallup ætlar naumur meirihluti landsmanna að hafna frekari aðildarviðræðum við Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslunni...
EES án Ís­lands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ - Vísir
📅 27.08.2026 👁️ 1
EES án Ís­lands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ - Vísir
Hann segir að nokkur viðsnúningur gæti orðið í afstöðu Norðmanna til Evrópusambandsins næði Ísland einhvers konar undanþágum í hugsanlegum aðildarviðr...
Umfangsmikið styrkjakerfi ESB til ráðuneyta og helstu stofnana landsins á undanförnum árum
📅 27.08.2026 👁️ 1
Umfangsmikið styrkjakerfi ESB til ráðuneyta og helstu stofnana landsins á undanförnum árum
Umfangsmikið styrkjakerfi ESB til ráðuneyta og helstu stofnana landsins á undanförnum árum Fréttin27. ágúst 2026Evrópusambandið, InnlentLeave a Commen...
Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn - Vísir
📅 27.08.2026 👁️ 1
Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn - Vísir
Rúv greinir frá niðurstöðum kannanarinnar. 51,6 prósent segjast ætla að greiða atkvæði á móti áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið en 48,...
Kvöld­fréttir: Bjarni Ben og Halla Gunnars í beinni og fjöldafundur - Vísir
📅 27.08.2026 👁️ 1
Kvöld­fréttir: Bjarni Ben og Halla Gunnars í beinni og fjöldafundur - Vísir
Einungis tveir dagar eru í þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB og Áfram Ísland hreyfingin, sem hvetur fólk til þess að segja nei...
„Hjá­kát­legt“ sé að ræða verð á kaffi­bollum í Búda­pest - Vísir
📅 27.08.2026 👁️ 1
„Hjá­kát­legt“ sé að ræða verð á kaffi­bollum í Búda­pest - Vísir
Aðrir ræðumenn fundar Áfram Íslands á Austurvelli voru meðal annars Áslaug Arna, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, presturinn Auður Eir Vilhjálmsdótt...
Ratko Mladić: BBC correspondent on meeting dangerous fanatic early in Bosnian war
📅 27.08.2026 👁️ 1
Ratko Mladić: BBC correspondent on meeting dangerous fanatic early in Bosnian war
BBC special correspondent Allan Little met the "Butcher of Bosnia" in the early months of the Bosnian war.
Trump signs order to rename Lake Ontario to Lake America
📅 27.08.2026 👁️ 1
Trump signs order to rename Lake Ontario to Lake America
Trump's order comes after the trade talks between the US and Canada collapsed late last week.
Nýr þjóðarpúls: Aðeins fleiri segja nei
📅 27.08.2026 👁️ 1
Nýr þjóðarpúls: Aðeins fleiri segja nei
Eilítið fleiri ætla að segja nei en já í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald viðræðna við ESB á laugardag samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup.Af þeim s...
Formaður Leigjendasamtakanna: Það er rangt gefið og ég vil sjá hvað okkur stendur til boða
📅 27.08.2026 👁️ 1
Formaður Leigjendasamtakanna: Það er rangt gefið og ég vil sjá hvað okkur stendur til boða
Fasteignaverð og leiga hefur hækkað miklu meira hér á landi en annars staðar í Evrópu. Baráttan fyrir Nei-inu er borin uppi af lygaáróðri, líkt og ger...
Ólöglegir innflytjendur handteknir í Hafnarfirði
📅 27.08.2026 👁️ 1
Ólöglegir innflytjendur handteknir í Hafnarfirði
Tveir menn voru handteknir á tveimur mismunandi stöðum í Hafnarfirði í dag fyrir ólöglega dvöl í landinu. Annar þeirra var þar að auki við vinnu.Þetta...
Viðkvæm stund hjá Norðmönnum – Haraldur eins konar andlegur leiðtogi
📅 27.08.2026 👁️ 1
Viðkvæm stund hjá Norðmönnum – Haraldur eins konar andlegur leiðtogi
„Það er rosalegur dofi í fólki og fólk er svona í biðstöðu. Það veit ekki hvernig því á að líða – það sækist eftir samveru með fjölskyldu. Þetta er sv...
Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn - Vísir
📅 27.08.2026 👁️ 1
Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn - Vísir
Í tilkynningu á Facebook-síðu Hvíta hússins segir að Trump hafi undirritað tilskipunina núna um klukkan hálf sex að íslenskum tíma. Með þessari tilski...
Lindsay Clancy trial in hands of jury after closing arguments conclude
📅 27.08.2026 👁️ 1
Lindsay Clancy trial in hands of jury after closing arguments conclude
Prosecutors argued Clancy made a calculated decision to murder the children, while the defence argued that she was suffering from postpartum psychosis...
Stungan leiddi til skurðar - Vísir
📅 27.08.2026 👁️ 1
Stungan leiddi til skurðar - Vísir
Drengurinn var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttökuna til aðhlynningar samkvæmt dagbók lögreglu.  Tilkynnt var um líkamsárás í Breiðholtinu en um var ...
Kjörsókn utan kjörfundar mun meiri en búist var við
📅 27.08.2026 👁️ 1
Kjörsókn utan kjörfundar mun meiri en búist var við
Sjaldan hefur verið jafn mikil kjörsókn utankjörfundar og í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Tveir dagar eru f...
Hafi ekki vitað að slökkviliðsfólk myndi birtast í auglýsingu Áfram Ísland
📅 27.08.2026 👁️ 1
Hafi ekki vitað að slökkviliðsfólk myndi birtast í auglýsingu Áfram Ísland
Eyþór Rúnar Þórarinsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja, segist ekki hafa vitað að til stæði að nota slökkviliðsfólk í auglýsingu Áfram Íslan...
Champions League draw: Champions Paris St-Germain to face Manchester City and Aston Villa
📅 27.08.2026 👁️ 1
Champions League draw: Champions Paris St-Germain to face Manchester City and Aston Villa
European champions Paris St-Germain will face Premier League duo Manchester City and Aston Villa in the league phase of this season's Champions League...
Finna bæklingi Ungs jafnaðarfólks allt til foráttu: „Adolf Hitler myndi kjósa Já“
📅 27.08.2026 👁️ 1
Finna bæklingi Ungs jafnaðarfólks allt til foráttu: „Adolf Hitler myndi kjósa Já“
Stór hópur andstæðinga aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið finnur bæklingi Ungs jafnaðarfólks allt til foráttu, eru samtökin sökuð um einelti,...
Heitt dómsmál á Spáni: Ráku hótelstarfsmann sem stal klósettrúllum – Sagði hundinn hafa ælt í bílinn
📅 27.08.2026 👁️ 1
Heitt dómsmál á Spáni: Ráku hótelstarfsmann sem stal klósettrúllum – Sagði hundinn hafa ælt í bílinn
Hæstiréttur Katalóníu á Spáni hefur ógilt dóm þar sem hótelstarfmanni voru dæmdar milljónir í bætur vegna ólöglegrar uppsagnar. Starfsmaðurinn hafði s...
Valgerður er ósammála sínum gamla flokki um Evrópumálin - „Nýtum þetta tækifæri“
📅 27.08.2026 👁️ 1
Valgerður er ósammála sínum gamla flokki um Evrópumálin - „Nýtum þetta tækifæri“
Valgerður Sverrisdóttir fyrrum ráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins upplýsir það á Facebook að hún ætli sér að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslunn...
Borgarstjóri ræður samflokkskonu sína
📅 27.08.2026 👁️ 1
Borgarstjóri ræður samflokkskonu sína
Borgarstjóri ræður samflokkskonu sína Sandra Hlíf Ocares, fyrr­um vara­borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hef­ur ver­ið ráð­in verk­efna­stjó...