Björgunarsveitir í Japan leita að fólki í rústum verslunarmiðstöðvar og pappírsverksmiðju sem skemmdust mikið í hörðum jarðskjálfta í gær.
Að minnsta kosti þrettán létust og á fjórða tug slösuðust í skjálftanum, sem var af stærðinni 7,1. Hann varð í Kumamoto-héraði á Kyushu-eyju í suðvesturhluta Japan.
Skjálftinn olli miklu tjóni – hús hrundu, eldar kviknuðu og tugir þúsunda íbúa eru án rafmagns og vatns. Rúmlega níu þúsund hafa leitað skjóls í yfir 500 fjöldahjálparmiðstöðvum í þremur héruðum á Kyushu.
Íbúar segjast aldrei hafa upplifað jafn öflugan skjálfta
Sprenging varð í verslunarmiðstöð í bænum Kashima í Kumamoto stuttu eftir jarðskjálftann og önnur hæð byggingarinnar hrundi. Þrír létust og fjögurra er saknað.
Fimm létust í pappírsverksmiðju í borginni Yatsushiro þegar hluti af reykháfi féll til jarðar, fjögurra er saknað.
Sanae Takaichi, forsætisráðherra Japans, segir að fjölmennt lið lögreglu, hermanna og slökkviliðs reyni í kapp við tímann að koma þeim til hjálpar sem slösuðust í skjálftanum.
Yfir hundrað eftirskjálftar hafa orðið síðasta sólarhring. Íbúar hafa sagt við fréttaveitu AFP að skjálftinn sé einn sá öflugasti sem þeir hafa kynnst. Sumir gátu ekki staðið upp vegna þrýstingsins og aðrir hafa áhyggjur af því að það sé langt þangað til Kumamoto jafnar sig af afleiðingum hans.