Guðmundur Páll Jónsson, lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir rannsókn málsins enn í gangi en vill lítið segja um tildrög slyssins. Það megi ekki rekja til hraðaksturs eða símanotkunar. Hann segir hraðakstur ekki vandamál á þessum slóðum.
„Konan var mjög slösuð þegar hún var flutt á slysadeild en síðast þegar ég heyrði voru batahorfur góðar,“ segir hann í samtali við fréttastofu.
Greint var frá slysinu í dagbók lögreglunnar fyrir viku þar sem sagði að ekið hefði verið á gangandi vegfaranda í póstnúmeri 103.