Franska lögreglan hóf morðrannsókn eftir að 12 ára drengur fannst látinn í dag með handklæði bundið um hálsinn að sögn saksóknara.
Barnið fannst á bökkum Vilaine-árinnar í borginni Rennes í norðvesturhluta landsins, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá saksóknaraembættinu á svæðinu.
„Enn á eftir að koma í ljós hvaða aðstæður leiddu til dauðsfallsins,“ en „aðkoma þriðja aðila er ein af tilgátunum,“ bætti embættið við.
„Blautt baðhandklæði var bundið mjög þétt um háls hans.“
Lögreglan var á vettvangi á sunnudagskvöld og framkvæmdi rannsóknir nærri íbúðabyggð við ána, að því er blaðamaður AFP sá.
„Þetta er mikið áfall. Þetta er rólegt hverfi, ekki langt frá miðbænum. Ég hef aldrei orðið fyrir neinu ónæði,“ sagði íbúi á fertugsaldri, sem neitaði að gefa upp nafn sitt, í samtali við AFP.
