Bandarísk yfirvöld hafa afhent Ítölum 337 stolna fornmuni en lögregla beggja ríkja hafði samvinnu um að hafa uppi á þeim. Þetta er einhver mesta endurheimt minja á síðari tímum.
Munirnir, allt frá fornum rómverskum höggmyndum til grískra, etrúskra og egypskra verka, voru í gær sýndir í höfuðstöðvum þeirrar deildar ítölsku lögreglunnar sem vinnur að björgun menningarverðmæta.
Ítalir hafa áratugum saman reynt að stöðva viðskipti með stolna fornmuni og hafa á síðustu árum endurheimt þúsundir gripa sem taldir eru milljóna evra virði. Einn sá merkilegasti er fyrstu aldar marmaralíkneski af Alexander mikla sem stolið var af safni í Róm 1960.
Einnig mátti sjá bronsstyttu sem stolið var í rómversku borginni Herculaneum, sem grófst ásamt borginni Pompeii undir öskulagi árið 79 þegar Vesúvíus gaus. Jafnframt gaf að líta aldagamlar rómverskar myntir, skartgripi og leirmuni svo eitthvað sé nefnt.
Mörgum munanna hafði verið stolið úr menningarstofnunum og að lokum endað á alþjóðlegum listaverkamarkaði.
Ríkin tvö endurnýjuðu í fyrra samkomulag um hert tollaeftirlit með innflutningi fornminja frá Ítalíu til Bandaríkjanna. Tækniframfarir, aðgangur að gagnasöfnum á netinu og aukin samvinna við Bandaríkin eru sögð lykillinn að góðum árangri.
Bandaríski sendiherrann Tilman J. Fertitta sagði stjórnvöld hvergi af baki dottin við liðsinnið enda brýnt að skila Ítölum öllum fögrum gripum sem lent hefðu í þjófshöndum. Sérfræðingar skoða munina í hörgul áður en þeim verður skilað til uppruna síns víðs vegar um Ítalíu — þar sem unnt er.