Bandaríkjaher skaut í nótt niður nokkra árásardróna Íranshers sem flugu í átt að Hormússundi. Stjórnstöð hersins segir drónana hafa ógnað skipaumferð.
Í dag hafa meðal annars Donald Trump Bandaríkjaforseti og Abbas Aragchi utanríkisráðherra Írans sagt samkomulag milli ríkjanna í augsýn.
Nokkur óvissa ríkir þó um samningsatriðin.
Íranski ríkisfjölmiðillinn IRNA birti samningsdrög í morgun sem Trump sagði að hefðu ekkert að gera með þá skilmála sem búið væri að samþykkja. Báðar hliðar hafa þó sagt samkomulagið fela í sér opnun Hormússunds fyrir skipaumferð.
Í dag varaði Trump Írana við því að gera fleiri drónaárásir á skip sem ættu leið um Hormússund. Hann sagði stjórnvöld í Tehran þurfa að taka sig saman í andlitinu og það hratt.