Friðarsamkomulag hefur náðst milli Bandaríkjanna og Íran samkvæmt Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistans og Donald Trump Bandaríkjaforseta. Samkvæmt heimildum AFP-fréttastofunnar munu löndin undirrita friðarsamning í Genf í Sviss 19. júní næstkomandi.
„Nú þegar samkomulagið er í höfn munu sáttasemjarar standa fyrir röð funda í þessari viku. Þessar viðræður, sem fara fram fyrir innleiðinguna, munu leggja grunninn að tæknilegum viðræðum og opinberu undirritunarathöfninni,“ skrifaði Shehbaz Sharif á samfélagsmiðilinn X, en hann hefur verið einn af lykilmálamiðlurunum í margra mánaða stríði í Miðausturlöndum.
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði einnig að friðarsamkomulag við Íran væri „nú í höfn“. Lýsti hann því yfir að Hormúsund væri opið og að Bandaríkin myndu aflétta herkví sinni á sjó.
„Samningurinn við íslamska lýðveldið Íran er nú í höfn. Til hamingju öll!,“ sagði Trump á samfélagsmiðli sínum, Truth Social, skömmu eftir að Pakistan, sem milligönguaðili, sagði að samkomulag hefði náðst.
„Ég heimila hér með að Hormúsund verði opnað að fullu án nokkurra gjalda, og heimila jafnframt tafarlausa afléttingu á herkví Bandaríkjahers á sjó. Skip heimsins, ræsið vélarnar. Látið olíuna flæða!“