Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, segir að ekki sé unnið að því í ráðuneyti hennar að koma á fót svæðisskrifstofum fyrir framhaldsskóla. Forveri hennar í starfi kynnti slíkar tillögur í fyrra.
Guðmundur Ingi Kristinsson, þá þingmaður og ráðherra Flokks fólksins, kynnti í fyrra nýtt stjórnsýslustig við opinbera framhaldsskóla. Færa átti stjórnsýslu og þjónustu við skóla frá ráðuneyti og skólum yfir á fjórar til sex svæðisskrifstofur í nærumhverfi skólanna.
Inga Sæland, sem tók við embættinu af Guðmundi Inga um áramót, sagði hins vegar á opnum nefndarfundi allsherjar- og menntamálanefndar í morgun að ekki væri unnið að því í ráðuneytinu að koma þessu stjórnsýslustigi á laggirnar þótt ekki væri búið að slá þær hugmyndir endanlega út af borðinu. Þessa stundina sé verið að gera skipulagsbreytingar þar sem tengiliðir eru færðir inn í framhaldsskólana.
„Þannig að ég býst við að þessar svæðisskrifstofur, þó það sé ekki búið að formlega slá þær út af borðinu, þá er það ekki það sem ég er að vinna að núna,“ sagði Inga Sæland.
Forveri hennar tók ákvörðun um að auglýsa stöður skólameistara Borgarholtsskóla og Menntaskólans á Egilsstöðum með þeim rökum að fyrirhugaðar væru umfangsmiklar breytingar á framhaldsskólastiginu með nýjum svæðisskrifstofum. Skólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum sótti um stöðuna þegar hún var auglýst á dögunum en Ársæll Guðmundsson, skólameistari Borgarholtsskóla, leit svo á að auglýsingin jafngilti uppsögn og hefur hann höfðað dómsmál.
Nokkrar stöður skólameistara losna á næsta ári og segir Inga ekki ákveðið hvort þær stöður verði auglýstar. Það fari eftir því hvernig skipulagsbreytingum í ráðuneytinu miðar. „En við erum að vona að við verðum búin að koma öllu þessu á þann stað að til þess þurfi ekki að koma.“ Komi til þess hvetur ráðherra þá skólameistara sem hlut eiga að máli til að sækja aftur um stöðurnar.