Að sögn Hilmars Gunnarssonar bárust bæjaryfirvöldum fyrst fregnir af atvikinu um klukkan hálf átta í morgun. Lögreglu var strax gert viðvart og meindýraeyðum á vegum bæjarins.
„Það er réttast að íbúar haldi dýrum sínum í öruggu skjóli meðan við áttum okkur betur á stöðunni,“ segir Hilmar. „Við vitum ekki hvort minnkarnir hafi sloppið út í náttúruna eða hvort öryggisgirðingar hafi haldið.“
Hilmar segir um að ræða hrein og klár skemmdarverk.
„Það er ekki ólíklegt að þetta séu sömu aðgerðarsinnar og hafa verið að fara inn í Reykjabúið og Stjörnugrís,“ segir hann. „Heilbrigðiseftirlitið og Mast er á staðnum ásamt lögreglu og starfsfólki Mosfellsbæjar. Það er allt tiltækt viðbragð í gangi í augnablikinu.“