Ósjálfbær rekstur Reykjavíkurborgar 2025
Ársreikningur fegraður með froðuhagnaði
Rekstur Reykjavíkurborgar var ósjálfbær á árinu 2025 þrátt fyrir hámarksskattheimtu og stórauknar tekjur. Þá hækkuðu skuldir borgarinnar mjög samkvæmt nýbirtum ársreikningi borgarinnar.
5,3 milljarða króna tap varð af rekstri borgarsjóðs árið 2024 þrátt fyrir stórauknar tekjur sjóðsins á milli ára.
Froðuhagnaður vegna Félagsbústaða
Samstæða Reykjavíkurborgar var hins vegar gerð upp með tæplega átta milljarða króna hagnaði á árinu 2025 samkvæmt ársreikningnum.
Hafa verður í huga að þar er um froðuhagnað að ræða en ekki raunverulegan hagnað, byggðan á tekjum. Þessi ,,hagnaður" er til kominn vegna svokallaðrar matsbreytingar fjárfestingareigna Félagsbústaða, þ.e. félagslegra íbúða borgarinnar.
Það gefur ekki veginn rétta mynd af rekstri Reykjavíkurborgar að nota slíka virðishækkun á félagslegum íbúðum til að fegra rekstrarreikning samstæðunnar. Slík matsbreyting er reiknuð stærð, sem skilar ekki raunverulegum tekjum til rekstrarins Ekki stendur til að selja félagslegar íbúðir borgarinnar og er því ekki um fjárfestingareignir að ræða í eðlilegum skilningi þess orðs.
Án umræddrar matsbreytingar félagslegra íbúða nam tap samstæðu Reykjavíkurborgar 347 milljónum króna árið 2025.
Stjórnlaus skuldaaukning
Reykjavíkurborg glímir við alvarlegan skuldavanda. Skuldir borgarsjóðs námu tæplega 222 milljörðum króna um síðustu áramót og jukust um rúmlega átján milljarða á milli ára. Aukningin nam 8,9% og var því vel umfram ársverðbólgu 2025, sem var um 4,5%.
Skuldir samstæðu borgarinnar jukust um tæpa 36 milljarða króna á árinu eða um 6,8%, sem er einnig verulega umfram verðbólgu. Miklar skuldir hafa sligandi áhrif á rekstur borgarinnar en samkvæmt ársreikningnum námu fjármagnsgjöld hennar um 22 milljörðum króna á árinu 2025.
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Miðflokksins.