Bæjarráð Árborgar samþykkti á fundi sínum nýlega að í fjárhagsáætlun 2027 verði almennar gjaldskrár hjá A-hluta ekki hækkaðar umfram 2,5% sem er verðbólguviðmið Seðlabanka Íslands.
Bragi Bjarnason, sem situr í hreinum meirihluta Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn og er bæjarstjóri á nýju kjörtímabili eins og á því síðasta veit allt um málið.
„Um leið skorum við á ríkisvaldið og önnur sveitarfélög að koma í þessa vegferð með okkur því saman getum við náð árangri, bæði fyrir sveitarfélagið okkar og Ísland í heild ef við náum nú verðbólgunni niður,” segir Bragi.
Og það er eitthvað sem þið eruð að kalla á?
„Já, við erum að kalla eftir því og sýna þá okkar ábyrgð í því og fylgja öðrum sveitarfélögum, sem höfðu áður tilkynnt þetta fyrr í vor”.
Bragi segist hafa verulegar áhyggjur af þróun vaxta og verðbólgu í landinu.
„Já, ég hef raunverulegar áhyggjur vegna þess að bæði fyrir okkur íbúana og líka sveitarfélagið í heild sinni. Okkar helsta lánasafn er verðtryggt þannig að verðbólgan hefur mikil áhrif á rekstur sveitarfélaga á Íslandi, þannig að ef við náum því saman niður þá hefur það mjög jákvæð áhrif á reksturinn,” sagði Bragi.