Að minnsta kosti átta voru drepnir og tugir særðust í árásum víða um Úkraínu í nótt. Kyiv Independent segir að þrjátíu séu særðir eftir árásirnar.
Eldflaugaárás var gerð á hús í þorpi nærri borginni Kryvyi Rih í mið Úkraínu, en fjórir fullorðnir og tvö börn voru drepin í þeirri árás. Átta særðust í sömu árás og yfirvöld óttast að tala látinna eigi eftir að hækka. Árásir voru einnig gerðar á austur Poltava-hérað og á borgina Lviv, en í þeirri árás særðust fimmtán.
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti varaði við því í færslu á X í gærkvöld að Rússar væru búnir að vera með stóra árás í undirbúningi og að það væru líkur á því að árásir yrðu gerðar um nóttina.
Rússar hafa gert miklar árásir á Úkraínu undanfarið og í júnímánuði var mesta mannfall meðal almennra borgara í einum mánuði síðan í apríl 2022.
Birgðir Úkraínuhers af loftvarnarflaugum til að skjóta niður flugskeyti Rússa hafa farið þverrandi. Eingöngu er hægt að skjóta niður flugskeyti Rússa með bandarískum Patriot-loftvarnarflaugum sem Úkraínumenn hafa nú fengið leyfi frá Bandaríkjastjórn til að framleiða.