Teistan, farþegabátur gerður út af Ribsafari í Vestmannaeyjum, sigldi í dag á milli Landeyjahafnar og Eyja.
„Það koma upp aðstæður, eins og í dag, þar sem ófært er fyrir Herjólf í Landeyjahöfn en smærri bátur öflugur gæti komist þangað inn,“ segir Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs. Hann segir að þess vegna hafi verið fundið upp á því að vinna með Ribsafari til að sigla til Landeyjahafnar.
Aðstæður í Landeyjahöfn hafa verið erfiðar það sem af er ári og Herjólfur oftast þurft að sigla lengri leiðina til Þorlákshafnar. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir aðstæður kalla á fleiri lausnir. Herjólfur sigldi frá Vestmannaeyjum til Þorlákshafnar í morgun og aftur þangað seinnipartinn.
Gert með öryggi að leiðarljósi
Fyrir fólk sem hefur farið til Vestmannaeyja og skilið bílinn eftir í Landeyjahöfn eða getur fengið far þangað hentar fyrirkomulagið vel. Engar skipulagðar rútuferðir eru til Landeyjahafnar nema hún sé opin til siglinga og því getur verið erfitt fyrir fólk að nálgast bíla sína úr Þorlákshöfn.
Teistan er að sögn Ólafs fullfær um að sinna siglingum á milli lands og Eyja.
„Hann er með haffærisskírteini. Þar eru skipstjórarnir mjög reynslumiklir og þekkja vel aðstæður. Þetta er ekki gert nema með fullkomið öryggi að leiðarljósi, bæði fyrir áhöfn, farþega og bátinn sjálfan,“ segir hann.