Slysavarnafélagið Landsbjörg leggur til að Almannavarnir verði að sjálfstæðri stofnun með það meginhlutverk að samhæfa viðbragðsaðila hér á landi og aðgerðir þegar hættuástand skapast í stað þess að heyra undir embætti ríkislögreglustjóra.
Í skýrslu starfshóps vegna jarðhræringa og eldsumbrota á Reykjanesskaga er ítrekað gerð athugasemd við óformlegt verklag, skort á skriflegu verklagi og óskýra ábyrgð við aðgerðir í Grindavík.
„Það að almannavarnir séu sjálfstæð stofnun, ástæðan fyrir því að okkur þykir það mikilvægt, er þetta samhæfingarhlutverk almannavarna,“ segir Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, formaður Landsbjargar.
Nýtt almannavarnafrumvarp sem dómsmálaráðherra ætlar að leggja fram í haust sé kjörið tækifæri til að skilgreina slíkt hlutverk.
„Almannavarnir eiga að vera fyrir alla viðbragðsaðila og vera regnhlífin sem tengir okkur öll saman,“ segir Borghildur. „Þær ættu að vera regnhlífin sem samhæfir aðgerðir í hættuástandi sem undirbýr viðbragðsáætlanir, fylgir því eftir að þær séu gerðar, að þær séu æfðar, og eftir atburði fylgir eftir rýni og endurreisn og því að við byggjum upp áfallaþol aftur.“
Borghildur segir að með slíkri stofnun yrði hægt að taka á mörgum þeim atriðum sem starfshópurinn gerði athugasemd við.
„Þá erum við komin með stofnun sem er með þetta samhæfingarhlutverk allra viðbragðsaðila og það er ekki á hendi eins viðbragðsaðila að samhæfa hina.“
Mikilvægt sé að leggja meiri áherslu á endurreisn, fyrirbyggjandi aðgerðir og samhæfingu í hlutverki almannavarna.
„Þessir þættir eru í rauninni ekki hluti af kjarnastarfsemi lögreglu en lögregla er vissulega ómissandi partur af því að vera viðbragð í almannavarnaástandi.“