Minniháttar tjón varð vegna elds og reyks en mun verr hefði geta farið, segir í Facebook-færslu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Verkefni sjúkraflutningamanna voru 80, þar af 32 á hæsta forgangi.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði fjölda ökumann í umferðinni í gærkvöldi og nótt. Þó nokkur fjöldi ökumanna reyndist án réttinda og þá voru sjö stöðvaðir fyrir of hraðan akstur.
Tveir voru sektaðir fyrir að vera enn á nagladekkjum.