Fyrrverandi sveitarstjórnarfólk og stjórnmálafólk ræddu stöðuna í pólitíkinni í Silfrinu í kvöld í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga sem fara fram laugardaginn 16. maí.
Gestir kvöldsins voru þau Birkir Jón Jónsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi Kópavogs og Fjallabyggðar, Grímur Atlason, fyrrverandi bæjarstjóri í Bolungarvík og Dalabyggð, Heiða Kristín Helgadóttir, einn stofnenda Besta flokksins og Bjartrar framtíðar og Ragnheiður Ríkharðsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri í Mosfellsbæ sem ræddu meðal annars tóninn í kosningabaráttunni, áhrif samfélagsmiðla og breytt landslag stjórnmálanna.
Mest fór fyrir umræðu um kreditkortanotkun borgarstjóra Reykjavíkur, sem hefur verið áberandi síðustu daga í kosningabaráttunni. Birkir Jón Jónsson sagðist eiga erfitt með að skilja ákveðna þætti málsins og benti á að fólk á dagpeningum ætti almennt sjálft að greiða fyrir mat og akstur.
„Mér finnst leiðinlegt að síðustu dagar kosningabaráttunnar snúist um mál eins og þetta,“ sagði hann og benti á að önnur mál, svo sem leikskólar og grunnskólar, skipti kjósendur meira máli.
Heiða Kristín Helgadóttir sagði það hins vegar ekki koma sér á óvart að síðustu dagar kosningabaráttu færu í mál af þessu tagi og að það gerðist oft.
„Þetta með kreditkort borgarstjóra skiptir Reykvíkinga ekki rassgat máli“
Ragnheiður Ríkharðsdóttir tók undir gagnrýnina á tóninn í umræðunni og sagði sér þykja ömurlegt að pólitík snúist sífellt meira um að reyna að koma höggi á pólitíska andstæðinga.
Henni finnst að fólk eigi að geta rætt málin út frá sínum gildum og sagt frá sínum markmiðum á málefnalegan hátt. „Þetta heitir að fara í manninn ekki boltann.“
Ragnheiður vill að pólitíkin í samfélaginu verði rædd frekar. Hún vill vita hvað fólk ætli að gera, komist það að, og að hvaða málum það ætli að vinna að.
„Það þarf að ræða það sem skiptir máli og skiptir íbúa sveitarfélaganna máli. Þetta með kreditkort borgarstjóra skiptir Reykvíkinga ekki rassgat máli.“ Íbúar séu frekar uppteknir af grunnskólum, leikskólum og annarri grunnþjónustu sveitarfélaganna.
Ragnheiður vill einnig að fólk sé ábyrgt orða sinna og að það tali ekki um menn og málefni af lítilsvirðingu og láti eins og mótframbjóðendur skipti engu máli. Hún vill að nýju fulltrúar Reykjavíkurborgar séu málefnalegir í nálgun sinni á hvað þeir vilji gera fyrir borgina.
„Það er sú nálgun sem mér finnst óþægilegust í pólitík, það er „það eru allir asnar nema ég, ég er sú eina sem hefur réttu lausnina, af hverju kjósið þið ekki mig?““.
„Þú getur sagt allan fjandann“
Breytt landslag stjórnmálanna vegna áhrifa samfélagsmiðla og gervigreindar á kosningabaráttu var einnig til umræðu.
Grímur Atlason sagði pólitíska umræðu í auknum mæli einkennast af miklu fjöri. „Ég væri til í aðeins meira zen,“ sagði hann.
Birkir Jón Jónsson sagði pólitíkina hafa tekið miklum breytingum á undanförnum árum og að áherslan væri nú í auknum mæli á ímynd og framsetningu frekar en efnislega umræðu. „Þú saknar þess að fá bara stefnuskrána í hendurnar,“ sagði hann.
Að hans mati hafi áður verið lögð meiri áhersla á að rétt væri farið með staðreyndir, en nú væri algengara að rangfærslur fengju að fljóta með í umræðunni. „Þú getur sagt allan fjandann og þú þarft ekkert að standa skil á gjörðum þínum eða orðum.“
Sveitarstjórnarmál nær fólkinu
Þrátt fyrir gagnrýnina sögðu gestir sveitarstjórnarstigið hafa marga kosti.
Birkir sagði afar skemmtilegt að starfa í sveitarstjórn þar sem fólk væri nær ákvarðanatökunni og hægt væri að bregðast hraðar við málum.
Heiða tók undir og sagði sveitarstjórnamál bæði nær fólki og oft eftirminnilegri en stjórnmál á landsvísu.