Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært konu fyrir umsáturseinelti gegn þremur mönnum og aðstandendum þeirra. Hún er einnig ákærð fyrir rangar sakargiftir, skjalafals, hótanir, ærumeiðandi aðdróttanir og barnaverndarlagabrot.
Konan komst síðast í fréttir í apríl þegar hún var handtekin eftir að hún sendi inn falska dánartilkynningu um einn mannanna í Morgunblaðið, en áður höfðu Vísir og Heimildin, meðal annarra fjölmiðla, fjallað um umsáturseineltið.
Ákæran, sem fréttastofa hefur undir höndum, er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir eru á sjöunda tug. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness á morgun. Konan er meðal annars ákærð fyrir umsáturseinelti gagnvart dætrum tveggja manna, sem báðar eru á unglingsaldri.
Með „fóstur“ í krukku og lét maka skít á hurðarhún
Umsáturseineltið gagnvart fyrsta manninum hófst 2022 og stóð í tvö ár. Í fyrsta ákæruliðnum er konunni gefið að sök að hafa mætt heim til mannsins með krukku sem hún sagði að innihéldi fóstur sem hún hefði misst.
Hún er einnig ákærð fyrir umsáturseinelti gagnvart sambýliskonu hans, syni og tengdaforeldrum. Hún sendi þeim og aðstandendum þeirra fjölda skilaboða frá fjölda samfélagsmiðlareikninga, stofnaði Tinder-reikninga í nafni mannsins og sambýliskonu hans, sakaði manninn um barnaníð og kynferðisbrot á opinberum vettvangi og sambýliskonuna um innflutning fíkniefna og sendi fjölda tilkynninga á barnaverndarnefnd, svo fátt eitt sé nefnt.
Samkvæmt einum ákærulið fékk húnn annan mann til að maka saur á hurðarhún heimilis og bifreiðar mannsins og konunnar. Sá er einnig ákærður í málinu.
Hafði samband við skóla og sakaði dótturina um kynferðislega áreitni
Umsáturseineltið gagnvart öðrum manninum, og dóttur hans, hófst samkvæmt ákæru í mars 2024 og stoð fram í ágúst 2025. Umsáturseineltið virðist þó ekki hafa hætt þá, því þessi hluti ákærunnar snýr að manninum sem var ranglega sagður látinn í Morgunblaðinu í síðasta mánuði.
Konan er meðal annars sökuð um að hafa áreitt dóttur mannsins, sem er á unglingsaldri, með ítrekuðum skilaboðum á samfélagsmiðlum, og um að hafa setið um manninn og dóttur hans á vinnustöðum þeirra. Hún sendi tölvupóst á framhaldsskóla dótturinnar þar sem hún var ranglega sökuð um kynferðislega áreitni gegn öðrum nemendum skólans, og annan þar sem faðirinn var sakaður um að koma með fíkniefni á heimavist skólans.
Þá hélt hún því ranglega fram við manninn að hún væri ófrísk eftir hann og að hann fengi aldrei að hitta barnið. Þessum röngu upplýsingum deildi hún einnig ítrekað á samfélagsmiðlum og hélt fram við dóttur mannsins í skilaboðum. Þá bjó hún til reikning á samfélagsmiðlum þar sem hún varaði við því að maðurinn væri barnaníðingur.
Hugðist kæra mann fyrir nauðgun í hefndarskyni
Í þriðja málinu sem tiltekið er í ákærunni er konan einnig ákærð fyrir umsáturseinelti gagnvart manni og dóttur hans. Það stóð frá apríl 2024 til júlí 2025 samkvæmt ákærunni. Henni er meðal annars gefið að sök að hafa útbúið nokkurn fjölda reikninga á samfélagsmiðlum þar sem hún birti nöfn og myndir af feðginunum ásamt niðrandi og ósæmilegum ummælum og ýmsum ásökunum gagnvart manninum.
Konan starfaði á tímabilinu í grunnskóla og hélt því ranglega fram við samstarfsfólk og nemendur að maðurinn væri kærasti sinn og stúlkan stjúpdóttir hennar. Þá greindi hún samkennara sínum frá því að þrír drengir við skólann hefðu sent dóttur mannsins óviðeigandi myndir og var það tekið til skoðunar innan skólans.
Þá er henni gefið að sök að hafa sent vinnuveitanda mannsins tölvupóst þar sem hún hélt því fram að hann hefði brotið kynferðislega gegn dóttur hennar. Þá tilkynnti hún manninn til barnaverndar og pantaði tíma hjá kærumóttöku lögreglu þar sem hún sagðist ætla að leggja fram kæru vegna nauðgunar. Hún viðurkenndi síðar að ásakanirnar væru rangar og hún hefði sent beiðnina í hefndarskyni þar sem maðurinn hefði kært hana til lögreglu fyrir umsáturseinelti og ærumeiðingar.