Borgarhönnuður telur skipulagsferli sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu gallað, því það feli í sér hvata sem leggja áherslu á magn á kostnað gæða. Edda Ívarsdóttir leggur til að sveitarfélögin leiti leiða til að færa hönnunina fyrr inn í ferlið, til að spara fjármagnskostnað og gera uppbyggingu mannvænni.
Hún segir fyrirmyndirnar til staðar á Norðurlöndum, þar sem borgir og sveitarfélög ganga til samstarfs við uppbyggingaraðila um þróun á uppbyggingareitum í gegnum forval eða samkeppni. Slíkt hefur verið gert hérlendis og hefur það gengið vel.
Rætt var við Eddu í Kastljósi í kvöld, en einnig við Ásdísi Hlökk Theodórsdóttur, aðjúnkt í skipulagsfræðum við Landbúnaðarháskóla Íslands og fyrrverandi forstjóri Skipulagsstofnunar. Hún segir skipulagsmálin alltaf vera flókinn málaflokk og tók undir með Eddu, þó hún teldi forval ekki alltaf eiga við.
„En það sem á hins vegar alltaf við er það sem hún líka nefndi, við þurfum að taka hönnunina framar í ferlinu, hönnunin þarf líka að gerast þegar við erum að vinna deiliskipulag.“
Að sögn Ásdísar Hlakkar er það eilíft viðfangsefni í skipulagsmálum hvernig tryggja megi að sú verðmætaaukning sem verði þegar búnar eru til uppbyggingarheimildir í skipulagi skili sér til samfélagsins.
„Þetta er eitthvað sem við erum alltaf að kljást við og þurfum að, núna í ljósi reynslu síðustu ára, við þurfum að endurskoða skipulagslöggjöfina til þess að ná betur utan um þetta.“
Nánar var fjallað um málið í Kastljósi kvöldsins, hægt er að nálgast þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan.