Aflýsa þurfti tveimur millilandaflugferðum Icelandair í vikunni vegna þess að ekki náðist að kalla flugmenn úr fríi þegar forföll voru hjá áhöfnum. Áhafnarskrá er unnin með löngum fyrirvara en þó er aldrei hægt að tryggja mönnun áhafna alfarið, segir Icelandair.
Flugfélagið þurfti að fella niður flugferð í fyrradag til Seattle vegna þess að ekki tókst að manna áhöfnina. Ekki tókst að manna flug til Kaupmannahafnar á þriðjudag.
Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, segir hvorugt tilfellið tengjast kjaraviðræðum FÍA og Icelandair. Hvorki sé um formlegar né óformlegar verkfallsaðgerðir af hálfu flugmanna að ræða.
„Okkur er afskaplega umhugað um bæði félagið og farþegana okkar,“ segir Jón Þór aðspurður um mögulegt hlutverk kjaradeilunnar í þessum niðurfellingum.
Kjaradeilu FÍA og Icelandair hefur verið vísað til ríkissáttasemjara. Jón Þór segir það ferli rétt að fara af stað og að þeir hafi aðeins fundað einu sinni með ríkissáttasemjara.
Áhafnaskrá sett upp með löngum fyrirvara
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, sagði á þriðjudag sjaldgæft að aflýsa þurfi flugferðum vegna áhafnarskorts.
En hvers vegna voru þessar flugferðir felldar niður og hvers vegna er ekki algengara að aflýsa þurfi flugferðum vegna áhafnarskorts? Í svari Icelandair við fyrirspurn fréttastofu segir að áhafnaskrá sé sett upp með löngum fyrirvara.
„En eins og gengur og gerist þá koma af og til upp forföll, til dæmis vegna veikinda. Á áhafnaskrá er einnig gert ráð fyrir bakvöktum. En ef forföll koma upp og búið er að kalla til allt starfsfólk á bakvakt er haft samband við flugmenn sem eru ekki á vakt og kannað hvort einhver geti hlaupið í skarðið og flogið á frídegi,“ segir í svari Icelandair.
Í kjarasamningi sé ákvæði um keypta frídaga og greitt sé eftir því.
„Í þessum tveimur tilfellum á undanförnum dögum hefur það því miður ekki gengið og aflýsa hefur þurft flugi.“