Karlmaður lést eftir að hafa fallið í Jökulsá á Brú í Stuðlagili á mánudag. Auðdís Tinna Hallgrímsdóttir leiðsögukona var með hóp ferðamanna á staðnum og varð vitni að slysinu og hringdi í neyðarlínuna.
„Ég er í raun svolítið ofarlega uppi á bökkunum þannig að ég kemst ekki neðar þar sem áin er og það gerir mann gjörsamlega hjálplausan. Maður getur ekkert gert annað en horft á, sem er náttúrlega bara ömurlegasta lífsreynsla sem ég hef upplifað,“ segir Auðdís Tinna.
Öryggi verulega ábótavant
Hún segir öryggi við gilið verulega ábótavant og ekkert sem aftri djarfari ferðamönnum frá því að fara fram á brúnina. Hún bendir á að þetta sé í annað sinn á tveimur árum sem einhver láti lífið með þessum hætti. Það sé með ólíkindum að Ferðamálastofa taki það fyrst núna til skoðunar að bæta öryggi við Stuðlagil.
Mér finnst eiginlega alveg ótrúlegt að það hafi þurft annað banaslys til þess að það eigi að fara að skoða að gera eitthvað. Mér finnst það ekki boðlegt. Af hverju þarf fólk alltaf að deyja til þess að eitthvað sé skoðað?
200 þúsund fari að Stuðlagili á ári
Sjálf fari hún með ferðamenn víða um land og talsverður munur sé á innviðum við ferðamannastaði eftir því hvar þeir séu á landinu. Hún segir það alveg ljóst frá sínum bæjardyrum séð að innviðir á svæðinu væru betri væri Stuðlagil nær höfuðborgarsvæðinu. Sífellt fleiri ferðamenn sæki austur á land og því sé mikilvægt að bæta úr þar sem við á, áður en illa fari.
Ég meina 200 þúsund manns bara að fara í Stuðlagil á ári. Þetta er ekkert lítið.