Að nudda sér upp við hægri öfgamann

Jón Magnússon skrifar:
Fréttastjóri DV netmiðilisins, Kristinn H. Guðnason fór gjörsamlega af hjörunum í skrifum sínum um fyrrverandi forsetafrú Dorrit Músajef vegna stuðnings hennar við Umbótaflokkinn í Bretlandi og Nigel Farage formann hans. Ef til vill ekki við öðru að búast af manni sem ólst upp á Kjarnanum, sem engin nennti að lesa.
Fréttastjórinn velur Farage ýmis heiti í færslu sinni þar sem hann reynir að níða Dorrit niður og tekur sér sem helstu vitni um hvers konar ómenni og drulludeli Farage og Dorrit séu, vinstri mennina Egil Helgason, Illuga Jökulsson og Guðmund Magnússon sagnfræðing, sem kunnir eru að því að haga málflutningi eftir hentugleikum svo vel megi gagnast vinstri elítunni í landinu.
Í stuttri færslu kallar fréttastjórinn Farage, "hægri öfgamann" og "ótrúlega ógeðfelldan mann",en segir þó að verri sé hægri stefnuskrá Umbótaflokksins. Þá kemst hann að þeirri niðurstöðu vegna afstöðu konu Ólafs Ragnars Grímssonar fyrrum forseta, að fyrir liggi "skítlegt eðli" hans og tengir síðan saman og býr til samsæriskenningu, að nú geti allir séð af hverju Ólafur sé svona skítlegur að vera á móti inngöngu Íslands í ESB.
Sjaldan sem svona ógeðfelld einsleit öfgaskrif verða á vegi manns í íslenskum fjölmiðlum eins og þessi grein fréttastjóra DV. Öfgaskoðanirnar eru allar hans megin og þeirra sem hann vísar til, sem fordæma Dorrit vegna pólitískra skoðana hennar.
Í sjálfu sér er eðlilegt að fréttastjórinn og ofangreindir vinstri menn sem hann vísar til hafi orðið fyrir áfalli þegar Umbótaflokkurinn vann afgerandi stórsigur í sveitarstjórnarkosningunum í Bretlandi í fyrradag og er nú afgerandi langstærsti og öflugasti stjórnmálaflokkurinn í sveitastjórnum um gjörvallt Bretland. En er þá ekki rétt að fjalla um það málefnalega í stað þess að vera með skítkast út í þá sem hafa aðra skoðun í pólitík en fréttastjórinn og spekimannafélag hans.
Ekkert af þeim dagblöðum í Bretlandi, sem njóta virðingar sem virtir góðir fréttamiðlar og vandaða umfjöllun um stjórnmál kalla Nigel Farage hægri öfgamann og þaðan af verra eins og fréttastjóri DV gerir. Skrif hans eru í ætt við vinstri sinnuðustu öfgafjölmiðla á Bretlandi, sem engin tekur lengur mark á nema e.t.v. afdankaðir stofukommar eins og Illugi Jökulsson, Egill Helgason og Guðmundur Magnússon.
Hvað svo sem því líður þá eru skrif fréttastjórans fordæmanleg árás á fyrrum forseta og konu hans, en villta tryllta vinstrið og öfga ESB sinnar sætta sig ekki við að fyrrum forseti skuli leyfa sér að hafa aðra skoðun en þau og vera á móti inngöngu Íslands í ESB og reyna því allt sem þau geta til að koma höggi á hann og leggjast meira að segja svo lágt að ráðast á konu hans í því skyni.