Að minnsta kosti sautján flóttamenn eru taldir af og níu er saknað eftir að báti þeirra hvolfdi á Miðjarðarhafi undan ströndum Líbíu.
Líbíski Rauði hálfmáninn greinir frá þessu og segir sjálfboðaliða hafa bjargað sjö úr hafinu við borgina Tobruk, skammt frá landamærunum að Egyptalandi. Sjóher Líbíu og strandgæsla tóku einnig þátt í björgunaraðgerðunum.