Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur undanfarið kynnt nýtt verklag varðandi hættulegt íbúðarhúsnæði. Því var veittur aðgangur að íbúðarhúsnæði í fyrsta skipti með dómsúrskurði vorið 2025. Nú eru því skýrari heimildir fyrir því að skoða íbúðarhúsnæði ef rökstuddur grunur er um að öryggi fólks sé ekki tryggt.
Slökkvilið hefur haft heimild til að athuga brunavarnir í atvinnuhúsnæðum án dómsúrskurðar. Fyrir úrskurðinn hafði slökkviliðið litla getu til þess að bregðast við ábendingum um íbúðarhúsnæði. Athuganir snúa helst að leiguhúsnæði.
„Við erum ekki að fara í íbúðarhúsnæði þar sem þú býrð með þínu fólki og skoða hvernig þú hefur það heima hjá þér en þegar þú ert farinn að leigja fólki, þú ert farinn að bera ábyrgð á öðrum, þú ert farinn að fá tekjur, þá átt þú samkvæmt öllum lögum og reglum að tryggja að brunavarnir séu í lagi hjá þeim sem þú leigir,“ segir Birgir Finnsson, slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu.
Ábendingum um húsnæði þar sem brunavörnum er ábótavant hefur fjölgað undanfarið. Að sögn Birgis voru ábendingar í fyrra á bilinu 25 til 30 en þær séu nú þegar orðnar svo margar í ár.
Bræðraborgarstígur hvati viðhorfsbreytinga
Birgir segir að bruninn á Bræðraborgarstíg 2020, þar sem þrír létust, sé meðal þess sem hafi valdið viðhorfsbreytingum. Húsnæðið var skráð sem íbúðarhúsnæði en brunavarnir voru í ólestri. Fyrir lagabreytinguna hafði slökkvilið litla burði til að bregðast við ábendingum um það.
Slökkviliðið hefur meðal annars heimild til þess að fara fram á að lagfæringar séu gerðar á húsnæði ef leyfi er fyrir þeim. Það getur einnig bannað notkun á hluta hússins og gert fólki að hætta búsetu.
Birgir segir alvarlegast þegar rýmum sem ekki séu ætluð til búsetu sé breytt í vistarverur. Hann tekur geymslugang í fjölbýlishúsi sem dæmi. „Þetta er mjór gangur, þetta eru þunnar hurðir, bara engar brunavarnir á milli geymslanna og svo er allt í einu komin búseta í geymsluna. Gluggar eru oft litlir, bara gluggarönd einhver og jafnvel ekki opnanleg. Þetta er náttúrulega bara óásættanlegt að fólk búi við þær aðstæður.“